Fréttasafn



8. maí 2026 Almennar fréttir Efnahagsmál Fréttatilkynning

50% hækkun fasteignaskatta sveitarfélaga á atvinnuhúsnæði

Í nýrri greiningu SI kemur fram að fasteignaskattar sveitarfélaga á atvinnuhúsnæði hafi hækkað um 50% að raunvirði á tíu árum sem er ríflega tvöföldun að nafnvirði. Skattheimta sveitarfélaganna nam 40 milljörðum króna í fyrra og er með því hæsta sem þekkist í alþjóðlegum samanburði. Það bæði skaðar samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og dregur úr verðmætasköpun hagkerfisins. Skattarnir námu í fyrra um 0,8% af landsframleiðslu, sem er tvöfalt hærra en að jafnaði í ríkjum OECD þar sem þeir eru 0,4%. Hlutfall fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði er mun hærra hér en á hinum Norðurlöndunum. Í Noregi eru þeir 0,2% af landsframleiðslu, 0,3% í Svíþjóð og 0,4% í Finnland. Samtök iðnaðarins telja að sveitarfélög eigi ekki að nýta hækkun fasteignaverðs til að auka skattbyrði atvinnulífsins. Samtökin telja það til fyrirmyndar þegar sveitarfélög bregðast við hækkun fasteignamats með samsvarandi lækkun skattprósentu og hvetja önnur sveitarfélög eindregið til að fylgja því fordæmi.

Fasteignaskattar-sveitarfelaga-2015-2025

Fasteignaskattar sveitarfélaga á atvinnuhúsnæði hafa á síðustu árum aukist umfram vöxt verðmætasköpunar hagkerfisins og veltu fyrirtækja. Skattarnir hafa hækkað 35% umfram vöxt veltu og hlutfall þeirra farið úr 0,7% í 0,8% af landsframleiðslu á síðustu tíu árum. Skattlagningin hefur því orðið sífellt meira íþyngjandi fyrir atvinnurekendur hér á landi. Fasteignaskattar eru gallað tekjuöflunartæki. Að óbreyttri skattprósentu hækka álögur sveitarfélaganna samhliða hækkandi fasteignaverði en sveitarfélög hafa talsvert um það að segja hvernig fasteignaverð þróast. Skattarnir geta því hækkað hratt, líkt og raunin hefur verið á síðustu árum, eingöngu vegna þess að húsnæðisverð hækkar. Þess má geta að skortur á lóðum og tafir í skipulagsferli og leyfisveitingum sveitarstjórna hafa verið mikið vandamál hér á landi á síðustu árum, sem hefur haldið aftur af uppbyggingu og framboði. Á sama tíma hefur húsnæðisverð hækkað verulega.

Fasteignaskattar-sveitarfelaga

Hér er hægt að nálgast greininguna í heild sinni.