Fréttasafn



10. des. 2020 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

80% bókatitla prentaðir erlendis

Fjöldi bókatitla sem prentaður er erlendis þetta árið er 519 eða 79,6% og 20,4% innanlands samkvæmt upplýsingum frá Bókasambandi Íslands sem hefur kannað prentstað íslenskra bóka sem getið er í Bókatíðindum Félags íslenskra bókaútgefenda 2020. Heildarfjöldi prentaðra bókatitla er 652 í Bókatíðindunum í ár en var 667 árið 2019.

Fjöldi titla sem prentaðir eru innanlands eru 133 og fækkar um 12 frá fyrra ári. Fjöldi bókatitla sem prentaður var erlendis í fyrra var 522 eða 78,3% og  21,7% prentað innanlands. 

Fræðibækur, bækur almenns efnis og listir eru alls 140; 54 (39%) prentuð á Íslandi og 86 (61%) prentuð erlendis.

Skáldverk, íslensk og þýdd, eru 203; 52 (26%) prentuð á Íslandi og 151 (74%) prentuð erlendis.

Saga, ættfræði, ævisögur, handbækur, matur og drykkur eru alls 68; 7 (10%) prentuð á Íslandi og 61 (90%) prentuð erlendis.

Barnabækur, íslenskar og þýddar, eru alls 241; 20 (8%) prentuð á Íslandi og 221 (92%) prentuð erlendis.

Fjöldi bóka prentaður og hlutfall af heild:

 Fjöldi titla % 2020 %2019 
 Ísland 13320,4%  21,7%
 Evrópa 44167,6% 70,2%
 Asía 7812%  0,7%