Fréttasafn



10. jan. 2019 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Aðalfundir SÍL og SHI

Aðalfundir Samtaka íslenskra líftæknifyrirtækja, SÍL, og Samtaka heilbrigðisiðnaðarins, SHI, verða haldnir föstudaginn 18. janúar kl. 16.30 á VOX Home á jarðhæð Hilton Reykjavík Nordica. Fyrirhuguð er sameining SÍL og SHI en tillaga þess efnis var samþykkt af stjórn SI í ágúst 2018. 

Hér er hægt að skrá sig á fundinn.

Dagskrá

1.     Kosinn fundarstjóri

2.     Kosinn ritari fundarins

3.     Slit SÍL og SHI og stofnun sameinaðs félags

4.     Starfsreglur nýs félags

5.     Kosning stjórnar
        a) formaður til eins árs
        b) fjórir meðstjórnendur til tveggja ára

6.     Lýst stjórnarkjöri

7.     Önnur mál

Fyrir frekari upplýsingar um fundinn er hægt að hafa samband við Eddu Björk Ragnarsdóttur, viðskiptastjóra á hugverkasviði SI, edda@si.is.