Fréttasafn



13. mar. 2019 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Aðalfundur Málms

Aðalfundur Málms, Samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði, verður haldinn fimmtudaginn 28. mars kl. 17.00-19.00 hjá Samtökum iðnaðarins í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 4. hæð. 

Dagskrá

1. Fundarsetning

2. Formaður flytur skýrslu stjórnar

3. Endurskoðaðir reikningar og fjárhagsáætlun

4. Lagabreytingar

5. Tillögur uppstillingarnefndar

6. Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna

7. Önnur mál

Að loknum hefðbundnum aðalfundastörfum verður flutt erindi „Vegið að starfsmenntun, tækifæri og ógnanir“ og er það Vilhjálmur Hilmarsson, sérfræðingur í greiningum hjá Samtökum iðnaðarins, sem kynnir. Léttar veitingar verða í boði að dagskrá lokinni.

Félagsmenn eru hvattir til að mæta og skrá þátttöku sína hér.