Fréttasafn



10. mar. 2026 Almennar fréttir

Aðalfundur SI

Aðalfundur Samtaka iðnaðarins fór fram í Húsi atvinnulífsins að morgni 5. mars.

Árni Sigurjónsson, fráfarandi formaður SI, setti fundinn. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, kynnti skýrslu stjórnar fyrir liðið starfsár og lagði fram endurskoðaða ársreikninga samtakanna fyrir liðið almanaksár. Þá var borin upp tillaga stjórnar um fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.

Á fundinum voru kynntar niðurstöður kosninga um formann og meðstjórnendur, jafnframt var kynnt kjör í fulltrúaráð Samtaka atvinnulífsins. Sigurður R. Ragnarsson, formaður kjörstjórnar, kynnti úrslit kosninganna.

Undir öðrum málum var ályktun Iðnþings samþykkt með framlögðum breytingartillögum. Að lokum þakkaði Sigurður Hannesson Árna Sigurjónssyni fyrir farsælt samstarf og nýkjörinn formaður, Þorsteinn Víglundsson, tók til máls og sleit fundi. Fundarstjóri var Hlynur Ólafsson, lögfræðingur Kerecis.

Hér er hægt að nálgast ársskýrslu SI. 

Árni Sigurjónsson, fráfarandi formaður SI.

IMG_6661Þorsteinn Víglundsson, nýr formaður SI.

IMG_6654Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.

IMG_6646Hlynur Ólafsson, lögfræðingur Kerecis og fundarstjóri. 

IMG_6659Sigurður R. Ragnarsson, formaður kjörstjórnar.

IMG_2798

IMG_2799

IMG_2804

IMG_2809

IMG_2810

IMG_2811

IMG_2812