Fréttasafn



15. nóv. 2018 Almennar fréttir

Aðventugleði kvenna í iðnaði

Samtök iðnaðarins bjóða konum í iðnaði í aðventugleði fimmtudaginn 29. nóvember kl. 17-19 á Vox Club, Hilton Reykjavík Nordica. Markmiðið er að kynnast, spjalla og sýna drifkraftinn sem konur í iðnaði búa yfir. Allar konur í aðildarfyrirtækjum SI eru boðnar velkomnar. Hér er hægt að skrá sig. 

Fram koma

  • Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI
  • Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra
  • Margrét Júlíana Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri og annar af tveimur stofnendum tölvuleikjafyrirtækisins Rosamosa
  • Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, söngkona

Boðið er upp á léttar veitingar. 

Bodskort-2018-lokautgafa