Andvari og Evolytes halda áfram með þjóðarverkefni í stærðfræði
Forsvarsmenn Andvara og Evolytes handsöluðu formlega áframhald á þjóðarverkefni í stærðfræði þar sem Andvari farsældarhraðall veitir öllum grunnskólum landsins endurgjaldslausan aðgang að Evolytes námskerfinu fyrir tvo árganga.
Í tilkynningu kemur fram að á síðasta skólaári hafi yfir 9 milljónum stærðfræðispurninga verið svarað, 97% kennara sáu jákvæð áhrif á vinnusemi nemenda, 97% kennara sáu jákvæð áhrif á viðhorf nemenda til stærðfræði og 87% kennara segja kerfið létta undir með daglegu starfi þeirra.
Íris E. Gísladóttir hjá Evolytes og Tryggvi Hjaltason hjá Andvara handsala áframhald á verkefninu.

