Fréttasafn



7. okt. 2016 Almennar fréttir

As We Grow og Geysir fá hönnunarverðlaun

Hönnunarverðlaun Íslands 2016 hlaut fyrirtækið As we grow en það er í eigu Guðrúnar Rögnu Sigurjónsdóttir, prjónahönnuðar, Maríu Th. Ólafsdóttur, fatahönnuðar og Grétu Hlöðversdóttur, framkvæmdastjóra. Hjá fyrirtækinu eru hönnuð prjónuð föt fyrir börn sem ætlað er að vaxa með barninu og endast milli kynslóða.

Í umsögn dómnefndar segir að As We Grow byggi á ábyrgum umhverfissjónarmiðum og afstöðu gagnvart líftíma og endingu framleiðsluvöru á tímum ofgnóttar. Tímalaus einfaldleiki hönnunar og einstök gæði vöru hafa ásamt samfélagslegri ábyrgð og metnaðarfullri stefnu í umhverfismálum skapað fyrirtækinu sérstöðu heima og heiman.

Besta fjárfesting í hönnun árið 2016 var valið fyrirtækið Geysir. Þetta er í annað sinn sem sú viðurkenning er veitt en í fyrra hlaut Össur viðurkenninguna. Í orðum dómnefndar kemur fram að fyrirtækið hafi fengið einhverja færustu hönnuði landsins til starfa á öllum vígstöðvum hvort sem við á um vörumerki, ímyndarsköpun, hönnun verslana, grafíska hönnun eða fatahönnun. Þannig hefur fyrirtækið skilgreint mikilvægi hönnunar í öllu þróunarferli og skapað ímynd og upplifun tengda fyrirtækinu með framúrskarandi hætti. Með því að setja þátt hönnunar í öndvegi hefur Geysir á skömmum tíma náð einstökum árangri og er orðið eitt þekktasta vörumerki landsins, kemur fram í umsögn dómnefndar.

Hönnunarmiðstöð Íslands stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Landsvirkjun, Samtök iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins.