Fréttasafn



4. maí 2020 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Atvinnulífið þrífst betur við lágar álögur og einfalt regluverk

Í leiðara Morgunblaðsins í dag er vitnað til ályktunar aðalfundar Samtaka iðnaðarins þar sem meðal annars er bent á að atvinnulífið „dregur vagninn í verðmætasköpun þjóðarbúsins og því er það forsenda fyrir kröftugri viðspyrnu að öflug fyrirtæki standi af sér storminn. Þannig geta þau haldið fólki í vinnu og tryggt afkomu heimila landsins“. Í leiðaranum segir að þetta sé grundvallaratriði sem sumir eigi erfitt með að skilja eða sætta sig við. Velferðin væri orðin tóm ef hér væru ekki öflug fyrirtæki til að standa undir henni. Þá segir að Samtök iðnaðarins fagni aðgerðum stjórnvalda en bendi á að frekari aðgerða sé þörf: „Ráðast þarf í framkvæmdir, létta álögum á fyrirtæki meðal annars með lækkun tryggingagjalds og fasteignagjalda á atvinnuhúsnæði, einfalda regluverk og ryðja hindrunum úr vegi, hvetja enn frekar til nýsköpunar með skattívilnunum, fjölga starfs- og tæknimenntuðum á vinnumarkaði með því að tryggja fleirum skólavist í haust og tryggja námslok og bæta umgjörð byggingarmála til að tryggja hraðari og hagkvæmari uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Þá þarf að grípa til aðgerða þannig að vaxtalækkanir Seðlabankans skili sér til fyrirtækjanna.“ 

Ennfremur segir í leiðaranum að atvinnulíf þrífist betur við lágar álögur og einfalt regluverk en þegar skattar og gjöld séu að sliga fólk og fyrirtæki og reglugerðafrumskógurinn og eftirlitið ætli alla framtakssemi að kæfa. Til að komast út úr því ástandi sem nú ríki, með á sjötta tug þúsunda á atvinnuleysisskrá og stóran hluta atvinnulífsins í alvarlegum vanda, þurfi að grípa til aðgerða sem hleypi aftur fjöri í atvinnulífið. Skammtímaaðgerðirnar sem gripið hefur verið til verði vonandi til þess að fleyta sem flestum yfir þann skyndilega skell sem fyrirtækin fengu á sig. Meira þurfi þó til og annars konar aðgerðir svo að atvinnulífið komist á það flug sem nauðsynlegt sé til að útrýma atvinnuleysinu og leggja aftur undirstöðurnar að þeirri velferð sem landsmenn séu vanir og vilji búa við.

Morgunblaðið, 4. maí 2020.

Morgunbladid-04-05-2020