Atvinnupúlsinn á N4
Á sjónvarpsstöðinni N4 eru sýndir þættir sem nefnast Atvinnupúlsinn en þar fer Karl Eskil Pálsson yfir það helsta sem er að gerast í atvinnulífinu á Eyjafjarðarsvæðinu. Þættirnir eru orðnir þrír talsins og eru hér fyrir neðan tengingar inn á hvern þátt.
Í fyrsta þættinum er meðal annars rætt við Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur, viðskiptastjóra á framleiðslusviði SI, um framleiðni. Í öðrum þætti er meðal annars rætt við Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóra SI, um iðnaðinn á Eyjafjarðarsvæðinu. Þá er Bryndís Skúladóttir, sviðsstjóri framleiðslusviðs SI, í viðtali í þriðja þættinum.