Fréttasafn



6. nóv. 2018 Almennar fréttir

Atvinnuþátttaka barna til umræðu

Umboðsmaður barna og Vinnueftirlitið efna til fundar um atvinnuþátttöku barna næstkomandi fimmtudag 8. nóvember á Hótel Natura, Þingsal 2, kl. 14.30-17.15. Á fundinum verða kynntar niðurstöður úttektar á fyrirkomulagi vinnuskóla sveitarfélaganna fyrir 13-15 ára sem umboðsmaður barna stóð fyrir í sumar og einnig kynntar nýjar upplýsingar frá Hagstofunni um atvinnuþátttöku barna eftir atvinnugreinum og aldri. Þá fjalla fulltrúar Vinnueftirlitsins um þau lög og reglur sem gilda um vinnu barna og skráningu vinnuslysa. Loks taka til máls fulltrúar úr ráðgjafarhópi umboðsmanns barna og segja af reynslu sinni af vinnumarkaði og vinnuskóla.

Þátttaka er endurgjaldslaus og kaffiveitingar verða í boði. Fundarstjóri og stjórnandi pallborðs er Salvör Nordal, umboðsmaður barna.  

Hér er hægt að skrá sig á fundinn. 

Dagskrá

  • Setning – Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra
  • Arndís Vilhjálmsdóttir, sérfræðingur hjá Hagstofunni. Aðlögun barna að íslenskum vinnumarkaði
  • Þórunn Sveinsdóttir, deildarstjóri hjá Vinnueftirlitinu, Hvaða reglur gilda um vinnu barna?
  • Kristinn Tómasson, yfirlæknir hjá Vinnueftirlitinu, Vinnuslys barna og ungmenna
  • Eðvald Einar Stefánsson, sérfræðingur hjá Umboðsmanni barna, Úttekt á umgjörð Vinnskóla 
  • sveitarfélaganna 
  • Fulltrúar úr ráðgjafarhópi umboðsmanns barna
  • Pallborðsumræður: Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði, Halldór Benjamín Þorbergsson, 
  • framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Inga Rún Ólafsdóttur, sviðsstjóri kjarasviðs Sambands íslenskra 
  • sveitarfélaga, Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, 
  • Samantekt og fundarlok