Fréttasafn



2. mar. 2020 Almennar fréttir

Auglýst eftir framboðum til formanns og stjórnar SI

Iðnþing SI verður haldið 16. apríl nk. Í aðdraganda þess fara fram rafrænar kosningar, þ.e. kosið er til formanns og stjórnar, auk þess sem kallað er eftir framboðum í fulltrúaráð Samtaka atvinnulífsins. Að þessu sinni er kosið um fimm sæti meðstjórnenda auk formanns.

Auglýst er eftir tilnefningum til þessara trúnaðar­starfa. Tilnefningar verða að hafa borist eigi síðar en 16. mars nk. til skrifstofu Samtaka iðnaðarins á tölvupóstfangið bjorg@si.is.

Um kjör formanns, stjórnar og ráðgjafaráðs

Í 7. kafla laga Samtaka iðnaðarins segir:

Stjórn SI skipa tíu menn, formaður og níu meðstjórnendur. Formaður er kosinn sérstaklega til tveggja ára í senn. Meðstjórnendur eru jafnframt kosnir til tveggja ára í senn og ganga því fjórir þeirra út annað árið en fimm hitt. Við kjör meðstjórnenda hljóta þeir fjórir eða fimm sem flest atkvæði hljóta, kosningu sem stjórnarmenn til tveggja ára. Þeir menn sem næstir koma að atkvæðamagni eru réttkjörnir varamenn og skulu taka sæti aðalmanna í stjórn, í samræmi við atkvæðafjölda á Iðnþingi.

Að þessu sinni er kosið um fimm sæti meðstjórnenda auk formanns.

Hver félagsaðili hefur atkvæði í hlutfalli við greidd félagsgjöld ársins 2019. Hverjum heilum 1.000 krónum í greiddum félagsgjöldum fylgir eitt atkvæði.

Sérstök athygli skal vakin á því að lög SI gera ráð fyrir að þau iðngreina- og meistarafélög, sem gerst hafa aðilar að SI fyrir hönd félagsmanna sinna, fari með atkvæðisrétt þeirra. Vilji einstaka félagsmaður iðngreina- eða meistarafélags fara með sitt eigið atkvæði eða vilji einstök félög hafa þann hátt á að einstakir félagsmenn þeirra fari með sín atkvæði sjálfir er nauðsynlegt að tilkynna það skrifstofu SI eigi síðar en 2. apríl næstkomandi.

Ítrekað skal að allir félagsmenn hafa rétt til setu á Iðnþingi og eru kjörgengir í formanns- og stjórnarkjöri óháð því hvort meistara- eða iðngreinafélög, sem þeir eru aðilar að, fara með atkvæði fyrir þeirra hönd.

Um kjör til fulltrúaráðs Samtaka atvinnulífsins

Í 9. kafla laga Samtaka iðnaðarins segir:

Kjör fulltrúa SI í fulltrúaráð SA fer fram á Iðnþingi. Þátt í þeim kosningum geta tekið aðildarfyrirtæki SI að því marki sem þau hafa ekki ákveðið að tilnefna eigin fulltrúa skv. lögum SA þar um. Þeir sem óska eftir að vera í kjöri skulu senda kjörnefnd SI tilkynningu um framboð sitt minnst 20 dögum fyrir Iðnþing. Berist færri framboð en nemur fjölda þeirra sem kjósa á, skal kjörnefnd gera tillögu til stjórnar SI um skipan í fulltrúaráð SA. Þann lista skal leggja fram til samþykktar á Iðnþingi.

Ekki er endanlega ljóst hve marga fulltrúa SI skal kjósa en þeir eru nú 32.

Eigi síðar en hálfum mánuði fyrir Iðnþing verða sendir út atkvæðaseðlar ásamt leiðbeiningum um tilhögun kosninganna.