Fréttasafn



18. jún. 2026 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Auka þarf samkeppnishæfni til að bæta lífskjör

Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, segir í fréttum RÚV að auka þurfi samkeppnishæfni þegar fjallað er um þá staðreynd að landsframleiðsla á mann hafi staðið í stað í sjö ár líkt og kemur fram í nýrri  greiningu SI. „Þetta merkir það að okkur er ekki að takast að bæta lífskjör með viðlíka hraða og áður fyrr. Það er sérstakt áhyggjuefni núna ef við lítum til 7 ára að þá hefur stöðnun orðið á þessu sviði.“ Hann segir að skoða verði með hvaða hætti sé hugsanlega hægt að snúa þessari þróun við.

Ingólfur segir marga þætti skýra af hverju þetta sé raunin og þeir varði allir samkeppnishæfnina. „Hvernig við stöndum í samkeppni við önnur  ríki. Við bendum sérstaklega á að þeir þættir sem skýra ólíka stöðu og ólíka þróun landsframleiðslu á mann milli landa eru þessir þættir sem varða mannauð, nýsköpun, starfsumhverfi, innviði og svo orku og umhverfismál.“ Hann segir mögulega megi snúa þessari þróun við með því að bæta stöðu Íslands á ýmsum sviðum, til að mynda minnka verðbólgu, auka iðn- og verkmenntun og tryggja rannsóknar- og þróunarstarf. Þá þurfi að auka uppbyggingu íbúðahúsnæðis tryggja stöðugleika í efnahagsmálum og vinna í innviðaskuld. 

Hér er hægt að hlusta á viðtalið við Ingólf.

RÚV, 18. júní 2026.