Aukin samkeppnishæfni í algjöran forgang
Fulltrúar Samtaka iðnaðarins tóku þátt í formannafundi BusinessEurope þar sem áhersla var lögð á aukna samkeppnishæfni Evrópu og mikilvægi þess að hraða aðgerðum sem hvetja til fjárfestingar og vaxtar innan álfunnar.
Þorsteinn Víglundsson, formaður SI, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, og Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, sóttu fundinn sem haldinn var í Dublin 21.-22. maí en Írar taka við formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins í byrjun júlí. Fundurinn sendi frá sér yfirlýsingu, Dublin Declaration, þar sem kallað er eftir því að setja það í algjöran forgang að efla samkeppnishæfni Evrópu. Lögð er rík áhersla á að nýta formennskutíð Írlands á seinni hluta ársins 2026 til þess að draga úr reglubyrði fyrirtækja um að minnsta kosti 25%. Sérstaklega er kallað eftir því að farið verði í sértækar aðgerðir til að tryggja samræmdan innri markað án hindrana og að innleitt verði nýtt, stafrænt evrópskt félagaform (e. EU Inc.) sem einfaldi rekstur yfir landamæri. Kallað er eftir því að efla fjárfestingar í nýsköpun og einfalda aðgengi að fjármagni. Til að styðja við vöxt álfunnar er kallað eftir aðgerðum til að bregðast við skorti á faglærðu starfsfólki, sérstaklega innan raungreina (STEM). Þá eru öryggis- og varnarmál ásamt viðnámsþrótti í forgrunni þar sem tryggja þarf skýra stefnu sem drifkraft fyrir vexti iðnaðar og nýsköpunar.
Evrópskt í forgrunni (e. European preference) var til umræðu á fundinum. Afstaða BusinessEurope er að gæta þurfi meðalhófs við innleiðingu á slíkum skilyrðum sérstaklega í samhengi við fyrirliggjandi löggjafartillögu um iðnaðarhraðal (e. Industrial Accelerator Act). Mikilvægt er að skilyrði í komandi löggjafartillögum leiði ekki til aukins flækjustigs, séu afmörkuð við sértækar greinar og að útfærslan verði skýr. Á fundinum komu fram sjónarmið um mikilvægi þess að nágrannaríki falli án alls vafa undir skilgreininguna.
Samtök iðnaðarins hafa um árabil sinnt alþjóðlegri hagsmunagæslu fyrir íslenskan iðnað. Aðild að BusinessEurope tryggir íslenskum iðnfyrirtækjum rödd á vettvangi sem mótar framtíðarrekstrarumhverfi innan evrópska efnahagssvæðisins. Þátttaka SI í formannafundinum undirstrikar mikilvægi þess að Ísland sé virkur þátttakandi í mótun þeirrar stefnu sem hefur bein áhrif á samkeppnishæfni íslensks iðnaðar og vöxt framtíðarinnar.
BusinessEurope eru stærstu hagsmunasamtök evrópskra fyrirtækja gagnvart Evrópusambandinu. Samtals eiga 42 samtök atvinnurekenda í 36 löndum Evrópu aðild að BusinessEurope og eru Samtök iðnaðarins þar á meðal.
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, og Þorsteinn Víglundsson, formaður SI.
Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA, Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Þorsteinn Víglundsson, formaður SI, Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, og Hugrún Elvarsdóttir, verkefnastjóri á málefnasviði SA.
Þátttakendur á formannafundi BusinessEurope í Dublin.



