Bættir útboðshættir skila samfélaginu betri niðurstöðu
Félag ráðgjafarverkfræðinga (FRV) í samstarfi við Samtök iðnaðarins hafa gefið út tillögur að bættum útboðsháttum með það að markmiði að efla virka samkeppni, stuðla að faglegri framþróun og hámarka samfélagslegt virði opinberra verkefna. Framkvæmd útboða á verkfræðiráðgjöf er yfirskrift útgáfunnar.
Opinber útboð á verkfræðiráðgjöf geta skipta sköpum fyrir gæði mannvirkja, nýsköpun í greininni og hagkvæmri nýtingu almannafjár. Með útboðum móta opinberir verkkaupar ekki aðeins hvaða lausnir verða fyrir valinu, heldur einnig hvernig ráðgjafamarkaðurinn þróast til framtíðar. Það er því brýnt að útboðsskilmálar séu sanngjarnir, gagnsæir og í takt við raunverulegt starfsumhverfi ráðgjafa.
Hóflegar hæfiskröfur og raunhæft mat
Grundvallaratriði í opinberum innkaupum er að tryggja virka samkeppni. Of strangar eða ósveigjanlegar hæfiskröfur geta útilokað hæfa aðila og leitt til fákeppni. Í stað þess að leggja megináherslu á útilokandi hæfiskröfur ætti að auka vægi valforsendna sem gera raunverulegan greinarmun á hæfni, reynslu og nálgun fyrirtækja.
Sérstaklega er mikilvægt að meta starfsreynslu að verðleikum. Þróun innan greinarinnar sýnir að hæfni byggist síður á prófgráðum einum saman og oftar á sérhæfðri reynslu og þekkingu sem aflað er í starfi. Slíkt mat styður jafnframt betur við nýliðun og fjölbreytni á markaði.
Nýliðun og framtíð
Ný og smærri fyrirtæki þurfa raunhæfan aðgang að opinberum verkefnum, jafnvel þótt rekstrarsaga þeirra sé stutt. Sama á við um yngri ráðgjafa sem þurfa tækifæri til að öðlast reynslu í verkefnum hins opinbera, undir faglegri handleiðslu reyndari sérfræðinga.
Langir rammasamningar án möguleika á nýliðun geta dregið úr hvata nýrri eða smærri fyrirtækja til að byggja upp þekkingu og nýsköpun. Með því að heimila aðgang nýrra aðila að rammasamningum á gildistíma þeirra má stuðla að heilbrigðari markaðsþróun.
Nýsköpun krefst sveigjanlegra útboðsforma
Hefðbundin almenn útboð henta ekki öllum verkefnum. Með því að nýta í auknum mæli samningsviðræður, samkeppnisviðræður eða hönnunarsamkeppnir skapast svigrúm fyrir skapandi lausnir og nýsköpun. Slíkar leiðir krefjast þó vandaðs undirbúnings og sanngjarnrar þóknunar.
Þá skiptir miklu að verkkaupar meti verklýsingar ráðgjafa til stiga. Hvernig verkefni er leyst skiptir oft meira máli en lægsta verðið eitt og sér, og slík nálgun er þekkt og vel heppnuð á hinum Norðurlöndunum.
Gagnsæi, meðalhóf og samvinna
Gagnsæi í hæfismati, skýrar reglur um mögulegt vanhæfi og hóflegar kröfur um tryggingar eru lykilatriði í traustu útboðsferli. Kröfur sem ekki eru í samræmi við umfang verkefna auka kostnað og áhættu án þess þó að bæta gæði.
Að lokum er mikilvægt að hafa í huga að árangur verkefna byggist á samvinnu. Útboðsskilmálar geta ýtt undir jákvætt samstarf með hvötum fremur en óhóflegum viðurlögum. Þegar verkkaupar og ráðgjafar upplifa sig í sama liði aukast líkur á betri niðurstöðu – fyrir alla.
Með bættum útboðsháttum má tryggja að opinber innkaup skili ekki aðeins lægsta kostnaði til skamms tíma, heldur bestu lausn til framtíðar fyrir samfélagið allt.
Hér er hægt að nálgast tillögurnar í heild sinni.

