Fréttasafn



18. mar. 2026 Almennar fréttir Efnahagsmál Fréttatilkynning

Bjartsýni breytist í svartsýni meðal stjórnenda í iðnaði

Í nýrri greiningu SI kemur fram að mun fleiri stjórnendur iðnfyrirtækja telja nú að aðstæður í efnahagslífinu séu slæmar fyrir þeirra fyrirtæki en þeir sem telja þær góðar. Þetta er alger viðsnúningur frá því fyrir ári þegar þessu var öfugt farið. 36% svarenda í könnun meðal stjórnenda iðnfyrirtækja innan Samtaka iðnaðarins telja aðstæður í efnahagslífinu á Íslandi slæmar fyrir þeirra fyrirtæki. Þetta er aukning frá því fyrir ári þegar 17% töldu aðstæður í efnahagslífinu slæmar. Einnig dregur verulega úr fjölda þeirra sem telja aðstæður góðar. Ríflega fjórðungur svarenda, eða 26%, telur að aðstæður í efnahagslífinu séu góðar nú en fyrir ári var það ríflega helmingur, eða 54%, sem mat aðstæður góðar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Outcome framkvæmdi meðal stjórnenda iðnfyrirtækja innan Samtaka iðnaðarins í febrúar og mars á þessu ári.

Adstaedur-i-efnahagslifinu

 

Fleiri telja að starfsfólki muni fækka en fjölga

Stjórnendur voru spurðir að því hvernig horfir með fjölda starfsmanna í þeirra fyrirtæki á næstu 12 mánuðum. Í fyrsta sinn síðan 2020 segir hærra hlutfall stjórnenda að starfsmönnum muni fækka en fjölga. Hlutfall þeirra sem segja að þeim muni fækka er 23% en 20% segja að þeim muni fjölga. Er þetta talsverð breyting frá því í fyrra þegar 13% sögðu að starfsmönnum myndi fækka en 28% að þeim myndi fjölga. Niðurstaðan bendir til þess að á næstu tólf mánuðum munu iðnfyrirtæki fækka starfsfólki til að mæta samdrætti. Sú þróun er raunar þegar hafin; störfum í greininni hefur fækkað, atvinnuleysi aukist og lausum störfum fækkað. 

Starfsmannafjoldi

Þrátt fyrir að starfsfólki fækki er enn talsverður skortur á mannauði með rétta færni og menntun í greinum iðnaðarins. Hins vegar hefur dregið úr skortinum undanfarið og má rekja það til þess samdráttar sem fyrirtæki í iðnaði hafa orðið fyrir. 

Skortur-a-starfsfolki_1773818634310

 

Vænta samdráttar í fjárfestingum

Stjórnendur iðnfyrirtækjanna voru spurðir að því hvernig þeir telji að fjárfestingar fyrirtækja þeirra í afkastagetu (húsnæði, vélum og tækjum) komi til með að þróast á næstu 12 mánuðum. 23% segja að þær aukist en 24% að þær minnki. 49% segja að þær standi í stað. Talsverð breyting hefur orðið í þessum hlutföllum síðan fyrir ári en þá sögðu 29% að fjárfestingarnar myndu aukast, 9% að þær myndu minnka og 58% að þær myndu standa í stað. Benda svarhlutföllin nú til þess að stöðnun verði í þessum fjárfestingum greinarinnar á næstu 12 mánuðum. 

Fjarfestingar

Hér er hægt að nálgast greininguna í heild sinni.