Fréttasafn



13. ágú. 2026 Almennar fréttir Mannvirki Samtök rafverktaka

Bók úr sögu rafverktaka afhent til varðveislu

Kjartan Gíslason afhenti á dögunum Pétri H. Halldórssyni, formanni Samtaka rafverktaka, bók til varðveislu sem tengist sögu Samtaka rafverktaka og forvera þeirra. Bókin hafði áður verið í eigu föður Kjartans, Gísla Jóhanns Sigurssonar, sem gegndi um árabil mikilvægu hlutverki í félagsstarfi rafverktaka. 

Formaður LÍR/SART í nær áratug

Gísli Jóhann starfaði ötullega að félagsmálum rafverktaka og var formaður LÍR/SART á árunum 1955-1964. Hann tók þannig virkan þátt í starfi og uppbyggingu samtaka rafverktaka á mótunarárum þeirra. Á sextugsafmæli Gísla Jóhanns færðu félögin honum veglega bók að gjöf og þökkuðu honum um leið vel unnin störf í þágu samtakanna. Bókin hefur að geyma teikningar úr Íslandsferðum franska náttúrufræðingsins og landkönnuðarins Paul Gaimard árin 1835 og 1836. Hún er bæði stór og vegleg og hefur verið varðveitt innan fjölskyldu Gísla um áratugaskeið. Eftir andlát móður Kjartans árið 2015 komst bókin í hans vörslu. Þegar kom að því að finna henni nýjan stað leitaði Kjartan til Samtaka rafverktaka og bauð þeim bókina til varðveislu.

Hluti af sögu félagsstarfs rafverktaka

Með afhendingunni hefur bókin nú aftur tengst þeim samtökum sem upphaflega færðu Gísla Jóhanni hana að gjöf. Hún er jafnframt áþreifanleg áminning um þá einstaklinga sem lögðu sitt af mörkum til félagsstarfs rafverktaka og uppbyggingar samtaka þeirra. Varðveisla muna og heimilda af þessu tagi stuðlar að því að halda sögu atvinnugreinarinnar og samtaka hennar á lofti og varðveita hana fyrir komandi kynslóðir.

Kjartan Gíslason (t.v.) afhendir Pétri H. Halldórssyni (t.h.) bókina sem er bæði stór og vegleg. 

20260716_113132_edited

Gaimard_Voyage_en_Islande_et_au_Groenland_title