Ákall um stöðugleika
Meirihluti kjósenda vill ekki að Ísland hefji að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Mjótt var á mununum og ljóst er að brúa þarf ólík sjónarmið í samfélaginu. Samtalið undanfarna mánuði felur í sér ákall um stöðugleika í efnahagsmálum og fyrirsjáanleika í rekstri heimila og fyrirtækja og það er á okkar ábyrgð að mæta því.
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins: „Nei við aðildarviðræðum er ekki já við óbreyttu ástandi. Samtök iðnaðarins brýna stjórnvöld til að ráðast tafarlaust í nauðsynlegar umbætur til að efla samkeppnishæfni og ná tökum á efnahagsmálum. Lækka þarf verðbólgu og vexti, tryggja næga raforku, hraða uppbyggingu innviða, einfalda regluverk og styrkja umhverfi fjárfestinga og nýsköpunar. Þessi verkefni hverfa ekki með niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þau verðum við að leysa sjálf.“
Samtök iðnaðarins kalla eftir þjóðarsátt þar sem stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins ná saman um aðgerðir til þess að ná verðbólgu niður og auka verðmætasköpun til að efla lífskjör.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar breytir ekki þeirri staðreynd að Evrópa er og verður mikilvægasta markaðssvæði íslensks iðnaðar og EES-samningurinn er mikilvægasti viðskiptasamningur Íslands. Stór hluti íslensks iðnaðar starfar á innri markaði Evrópu og sameiginlegt regluverk tryggir íslenskum fyrirtækjum aðgang að honum.
Samtök iðnaðarins undirstrika því mikilvægi EES-samningsins og kalla eftir skýrri stefnu stjórnvalda um hvernig Ísland ætlar að tryggja betur rekstur hans. Ísland þarf að beita sér fyrr og af meiri þunga við mótun EES löggjafar. Tryggja þarf þátttöku þeirra á evrópskum mörkuðum, í samstarfsáætlunum og nýrri iðnaðar- og öryggisstefnu Evrópu.
Samtök iðnaðarins hvetja stjórnvöld til aukins og reglubundins samráðs við atvinnulífið um EES-mál. Ráðast þarf í sérstakt átak til að vinna á innleiðingarhalla, auka gagnsæi um stöðu mála og skapa fyrirtækjum meira fyrirsjáanleika. Jafnframt þarf að koma í veg fyrir óþarfa gullhúðun við innleiðingu evrópskra reglna.
Niðurstaðan felur einnig í sér að Ísland mun áfram byggja alþjóðlega viðskiptastefnu sína á EFTA-samstarfinu og eigin viðskiptasamningum. Því þarf að tryggja virka hagsmunagæslu Íslands á vettvangi EFTA gagnvart gildandi fríverslunarsamningum og á sama tíma sækja fram á nýjum mörkuðum.
Verkefnið framundan er að leggja grunn að stöðugleika. Það er sameiginlegt verkefni okkar allra og lausnirnar eru til. Ákall landsmanna um stöðugleika kallar á tafarlaus viðbrögð og að umbætur skili fljótt árangri.

