Fréttasafn



13. des. 2024 Almennar fréttir Efnahagsmál Iðnaður og hugverk Nýsköpun

Einhyrningarnir Alvotech og Kerecis hljóta viðurkenningu SI

Stofnendur og forstjórar tveggja fyrirtækja sem teljast til svokallaðra einhyrninga tóku í gær við Geisla, sérstakri viðurkenningu Samtaka iðnaðarins, fyrir ómetanlegt framlag til íslensks atvinnulífs og verðmætasköpunar í landinu. Það voru Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, og Róbert Wessmann, stofnandi og forstjóri Alvotech, sem veittu viðurkenningunum mótttöku. Með þeim vilja Samtök iðnaðarins varpa ljósi á mikilvægi hugverkaiðnaðarins fyrir hagkerfið, hlutdeild greinarinnar í útflutningstekjum þjóðarbúsins og nauðsyn þess að fyrirtæki í greininni geti áfram vaxið.  

Í viðskiptalífinu er einhyrningur einkarekið sprotafyrirtæki sem metið er á milljarð bandaríkjadala eða meira fyrir skráningu á markað. Hugtakið er eignað áhættufjárfestinum Aileen Lee, sem notaði það fyrst í blaðagrein árið 2013 og vildi með tilvísun í hina goðsagnakenndu veru undirstrika fágæti þess að sprotafyrirtæki yrðu svo verðmæt. Einhyrningshugtakið varð fljótt þekkt um allan heim og eftirsóttur áfangi meðal frumkvöðla. 

Kerecis framleiðir lækningavörur úr fiskroði, sem m.a. eru notaðar við meðhöndlun sára af völdum sykursýki og bruna, áverka af ýmsu tagi og sem stoðefni við skurðaðgerðir. Kerecis var stofnað sem ráðgjafafyrirtæki árið 2007, en skipti um gír árið 2009 þegar hugmyndin að þróun sáraroðsins komst á skrið. Kerecis varð fyrsti alíslenski einhyrningurinn þegar félagið var selt fyrir 1,3 milljarða dala á síðasta ári. Kerecis er aðildarfélag Samtaka iðnaðarins.  

Líftæknifyrirtækið Alvotech var stofnað á Íslandi árið 2013 og öll þróun, framleiðsla og tekjur verða til hér á landi. Fyrirtækið vinnur að þróun á hágæða líftæknilyfjahliðstæðum til meðhöndlunar á erfiðum sjúkdómum eins og gigt, sóríasis og krabbameini. Verðmæti Alvotech rauf milljarðs dala múrinn í viðskiptum með hluti í Alvotech árið 2018. Alvotech er aðildarfélag SI. 

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI: „Árangur Alvotech og Kerecis er öðrum fyrirtækjum í hugverkaiðnaði mikil hvatning, en greinin er sú atvinnugrein sem vex hraðast hér á landi. Útflutningsverðmæti greinarinnar hefur tvöfaldast á síðustu fimm árum og eru útflutningstekjur áætlaðar 320 milljarðar króna á þessu ári. Mikilvægi hugverkaiðnaðar fyrir þjóðarhag hefur aukist í takti við öran vöxt og með því að sækja þau tækifæri sem blasa við má tvöfalda útflutningsverðmætin aftur á næstu fimm árum. Til að svo geti orðið - til hagsbóta fyrir land og þjóð - þarf að festa í sessi gott rekstrarumhverfi og tryggja samkeppnishæfni Íslands svo áfram verði fjárfest í nýsköpun bæði innan rótgróinna og í nýjum fyrirtækjum.“

Róbert Wessman, stofnandi og forstjóri Alvotech, og Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, tóku við viðurkenningunum úr hendi framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, Sigurði Hannessyni. Hvort fyrirtæki um sig fékk afhent til eignar viðurkenningargripinn Geisla sem er einstakt listaverk eftir myndhöggvarann Matthías Rúnar Sigurðsson. Gripurinn sem unnin er úr hvítum marmara er með listrænum tilvísunum í seiglu, snerpu og frumkvöðlaanda. Hann táknar afrek og hugrekki í viðskiptum, þar sem þrautseigja og nýsköpun hafa leitt til þess að fyrirtækið hefur náð árangri. Gripurinn er smíðaður úr hágæða efni, með sléttu, straumlínulöguðu yfirborði sem fangar ljósið á dularfullan og kraftmikinn hátt. Línur listaverksins vísa í hraða og stefnufestu, líkt og fyrirtækin sjálf sem hafa skarað fram úr með því að ná alþjóðlegri stöðu einhyrnings.

Á Facebook SI er hægt að nálgast fleiri myndir frá viðburðinum. 

Mynd/BIG

Frá afhending viðurkenningar Samtaka iðnaðarins, talið frá vinstri, Ingvar Hjálmarsson framkvæmdastjóri Nox Medical og formaður Hugverkaráðs SI, Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, Róbert Wessman, stofnandi og forstjóri Alvotech, Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI, og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI. 

Si_geisli_verdlaun_2024_a-21

Si_geisli_verdlaun_2024_a-22

Si_geisli_verdlaun_2024_a-14Róbert Wessman.

Si_geisli_verdlaun_2024_a-17Guðmundur Fertram Sigurjónsson.

Si_geisli_verdlaun_2024_a-11Sigurður Hannesson.

Si_geisli_verdlaun_2024_a-5Sigríður Mogensen.

Si_geisli_verdlaun_2024_a-8Ingvar Hjálmarsson.

Si_geisli_verdlaun_2024_a-1Erla Tinna Stefánsdóttir.

Si_geisli_verdlaun_2024_a-2

Si_geisli_verdlaun_2024_a-4

Si_geisli_verdlaun_2024_a-6

Si_geisli_verdlaun_2024_a-7

Si_geisli_verdlaun_2024_a-9

Si_geisli_verdlaun_2024_a-18

Si_geisli_verdlaun_2024_a-26

Si_geisli_verdlaun_2024_a-25

 



Viðskiptablaðið, 13. desember 2024.

mbl.is, 17. desember 2024.