Fréttasafn



30. des. 2020 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Ekkert sem réttlætir gríðarlega hækkun Sorpu

„Þegar um opinberan aðila eins og Sorpu er að ræða þá eiga þjónustugjöld að endurspegla það sem kostar að veita þjónustuna en ekki vera tekjuskapandi. Þrátt fyrir ítrekaðar óskir hafa stjórnendur Sorpu ekki getað sýnt fram á að kostnaður við þjónustuna hafi aukist þannig að það réttlæti þessa gríðarlegu hækkun,“ segir Lárus M. K. Ólafsson, viðskiptastjóri á framleiðslusviði Samtaka iðnaðarins, í Fréttablaðinu um gjaldskrárhækkun Sorpu sem taka á gildi 1. janúar en með henni sé gert ráð fyrir að heildartekjur Sorpu aukist um 24% á næsta ári. Í fréttinni kemur fram að ekki sé farin sú leið að hækka verðskrána um 24% á línuna heldur hækka sumir liðir margfalt meira en aðrir, til að mynda hækki móttaka á gleri og steinefnum um 267%.

Í fréttinni kemur fram að Samtök iðnaðarins hafi sent fyrir jól áskorun til stjórnar og eigenda Sorpu bs. um að fallið yrði frá fyrirhuguðum hækkunum á gjaldskrá fyrirtækisins og þess í stað reynt að hagræða í rekstri félagsins. Lárus segir afar mikilvægt að forsendurnar liggi fyrir enda hafi skjólstæðingar hans áhyggjur af því að verið sé að rukka þá fyrir kostnað sem fellur til við aðra starfsemi Sorpu, til dæmis rekstur gas- og jarðgerðarstöðvarinnar GAJA. Þá hafi skjólstæðingar áhyggjur af því að verið sé að hækka liði á mörkuðum sem Sorpa er með nánast einokunarstöðu á.

Í áskoruninni kemur einnig fram að Samtök iðnaðarins séu afar ósátt við að hafa ekki fengið að funda með stjórnendum Sorpu fyrr en eftir að ákvörðunin um gjaldskrárhækkunina var tekin. Skora því samtökin enn fremur á eigendur Sorpu að huga að vönduðum stjórnsýsluháttum. „Við erum afar ósátt með að vera kölluð að borðinu eftir að ákvarðanir hafa þegar verið teknar. Það verður að vera samráð við hagsmunaaðila,“ segir Lárus.

Verðskrárhækkun Sorpu stenst enga skoðun segir framkvæmdastjóri Endurvinnslunnar

Í Fréttablaðinu er einnig rætt við Helga Lárusson, framkvæmdastjóra Endurvinnslunnar, sem segir að verðskrárhækkun Sorpu standist enga skoðun, fyrirtækið taki við um 8 þúsund tonnum af gleri á ári, mest frá Endurvinnslunni. „Það hefur ekkert breyst í þeirri einföldu þjónustu sem Sorpa veitir okkur. Flutningabíll flytur glerið upp eftir, þar sem farmurinn er veginn og honum er síðan sturtað niður í haug. Í flestum tilvikum er síðan ýta notuð til að ýta haugnum til fyrir vegagerð eða annað. Okkar efni kemur hvergi nærri gas- og jarðgerðarstöðinni sem forsvarsmenn Sorpu segi að valdi hækkuninni.“ Að sögn Helga sé beinn kostnaður Sorpu við að veita þessa þjónustu um 4 milljónir króna á ári. „Samkvæmt þessari nýju verð­skrá verður að greiða Sorpu um 42 milljónir króna á ári, án virðisaukaskatts, fyrir þessa þjónustu. Raunkostnaðurinn er því 10% af þessari upphæð en óbeinn, óútskýrður kostnaður er 90%.“ Þá kemur fram að Helgi segi að ef eigendur Sorpu standi við hinar fyrirhuguðu hækkanir verði Endurvinnslan að leita réttar síns í málinu.

Fréttablaðið / Frettabladid.is, 29. desember 2020.