Fréttasafn



28. maí 2025 Almennar fréttir Mannvirki Samtök rafverktaka

Evrópskir rafverktakar vilja efla seiglu í raforkukerfum

Formaður og framkvæmdastjóri Samtaka rafverktaka, Sart, sátu fund framkvæmdastjóra innan Evrópskra samtaka rafverktaka sem aðild eiga að EuropeOn í Edinborg dagana 21.-23. maí, en gestgjafar fundarins voru skosku rafverktakasamtökin Select, sem í ár fagna 125 ára afmæli sínu. Fundurinn beindi sjónum að stefnumótun og nýjustu þróun í orkumálum, með sérstakri áherslu á viðbrögð við áskorunum sem tengjast innviðum og sjálfbærni raforkukerfa. Í umræðum á fundinum kom fram mikilvægi þess að efla seiglu í raforku- og fjarskiptakerfum.

Svartur dagur í spænska orkukerfinu

Á fundinum greindi Raúl Rodriguez, fulltrúi Spánar, frá straumleysi sem varð á Spáni þann 28. apríl og rakti það til óhóflegrar innspýtingar endurnýjanlegrar orku inn á ofhlaðið flutningskerfi. Hann lagði áherslu á að koma þyrfti á formlegu samtali milli dreifi- og flutningskerfisaðila til að styrkja seiglu orkukerfa og getu þeirra til að bregðast við sívaxandi orkuþörf og minnkandi fyrirsjáanleika í loftslagsmálum.

Seigla og öryggi rafmagnskerfa

Esther Dijk, fulltrúi Hollands, lagði áherslu á nauðsyn þess að bregðast við kerfisbilunum með samhæfðum aðgerðum með það að markmiði að tryggja aðgang að rafmagni og vatni. Alexander Neuhäser, fulltrúi Þýskalands, lagði til að hugtakanotkun um orkuskipti og öryggi yrði einfölduð með því að tala einfaldlega um "seiglu rafmagnsinnviða" og benti á mikilvægi jarðhitalausna í því samhengi.

Áskoranir og efnahagsleg þróun

Fulltrúar frá meðal annars Sviss og Austurríki sögðu frá breyttum reglum í heimalöndum sínum. Fulltrúi Sviss lýsti áhyggjum af nýjum reglugerðum, en í Austurríki höfðu skattfríðindi tengd endurnýjanlegum orkugjöfum verið afnumin. Í Frakklandi er starfsemi rafverktaka enn með nokkuð stöðugu móti, þó að erfiðleikar séu í íbúðamarkaði. Fulltrúi Sart greindi frá hraðri fólksfjölgun og örum vexti íslenska hagkerfisins síðastliðin 10 ár, en einnig þeim áskorun sem fylgir háum stýrivöxtum og minnkandi framboði á íbúðarhúsnæði.

Aðgerðaáætlun um rafvæðingu og lagasetning í farvatninu

Á fundinum var kynnt aðgerðaáætlun EU um rafvæðingu sem miðar að því að lækka orkukostnað og efla græna innkaupastefnu hins opinbera. Þá var rætt um innleiðingu nýrra reglna um orkunýtingu, sem eru nú að færast inn í landslög með stuttan frest til útfærslu.

Mikilvægi samstarfs

Að lokum var fjallað um kosti og galla mögulegrar sameiningar EuropeOn við önnur samtök með svipuð markmið og áhrifin sem slík sameining gæti haft á hagsmunagæslu. Sameiginleg niðurstaða fundarins var að þörf væri á öflugri samvinnu til að ná fram meiri áhrifum í stefnumótun stjórnvalda og tryggja öryggi og sjálfbærni í rafmagnsinnviðum framtíðarinnar.

Gjof-til-SelectPétur H. Halldórsson, formaður Sart, og Kristján Daníel Sigurbergsson, framkvæmdastjóri Sart, afhentu Alan Wilson, framkvæmdastjóra Select, gjöf frá Sart í tilefni 125 ára afmælis Select.

Fulltrúar evrópskra samtaka rafverktaka á fundinum í Edinborg.