Fréttasafn



29. ágú. 2019 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Fagna námi í tölvuleikjagerð

Samtök leikjaframleiðenda fagna því að nú sé hafið nám í tölvuleikjagerð í nýjum menntaskóla Keilis á Ásbrú. Nám í tölvuleikjagerð á framhaldsskólastigi hefur verið áherslumál hjá samtökunum í nokkur ár og munu samtökin veita faglega ráðgjöf við framkvæmd námsins. Þetta segir Vignir Örn Guðmundsson, formaður Samtaka leikjaframleiðenda, í grein sinni í Fréttablaðinu í dag. Hann segir að námið geri nemendum kleift að komast í tæri við fjölbreytt viðfangsefni tölvuleikjagerðar og öðlast grundvallarfærni í faginu fyrr á lífsleiðinni.

2016_Vignir-Gudmundsson-1311892069Í greininni kemur fram að mikil aðsókn hafi verið í námið og færri komist að en vildu eða alls 45 nemendur. „Það er ekki að ástæðulausu að nemendur sýni tölvuleikjagerð og leikjaiðnaði áhuga. Á alþjóðavísu veltir leikjaiðnaður í dag meira en kvikmyndaiðnaður og tónlistariðnaður til samans, um 43,8 milljörðum Bandaríkjadollara eða rúmlega 5.000 milljörðum króna. Tölvuleikir leika því stærsta hlutverkið í afþreyingariðnaði, sérstaklega hjá upprennandi kynslóðum.“

Mikil gróska í íslenskum leikjaiðnaði

Vignir Örn segir mikla grósku hafa verið í íslenskum leikjaiðnaði síðastliðinn áratug. Fjöldi virkra leikjafyrirtækja á Íslandi hafi farið úr 5 í 19 á síðustu 10 árum. Í leikjaiðnaði starfi yfir 300 manns. Leikjaiðnaður sé einstaklega hagrænn og skapandi iðnaður sem gangi ekki á auðlindir, byggi alfarið á hugviti, þarfnist fjölbreytts vinnuafls, bjóði há laun fyrir hæft starfsfólk og taki nánast alla sína veltu erlendis frá, eða um 98% að meðaltali síðustu 10 ár. Nám í tölvuleikjagerð á framhaldsskólastigi sé því sannarlega liður í að styrkja stoðir og grasrót leikjaiðnaðar hér á landi.

Þakkir til mennta- og menningarmálaráðherra

Í greininni segir jafnframt að Samtök leikjaframleiðenda vilji koma á framfæri þakklæti til forsvarsmanna menntaskóla Keilis á Ásbrú fyrir eljusemi og þrek í að koma brautinni á laggirnar. „Kerfið sagði nei í nokkur ár, en með nýrri forystu í menntamálum á Íslandi opnuðust dyr fyrir framsækið nám sem mætir eftirspurn hjá bæði nemendum og atvinnulífi. Samtökin vilja því færa Lilju Dögg Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, sérstakar þakkir fyrir að taka af skarið og láta námið verða að veruleika. Það er til marks um opinn hug og sýn ráðherra á hugvitsdrifnar náms- og atvinnugreinar.“

Fréttablaðið / Frettabladid.isVísir, 28. ágúst 2019.