Fréttasafn



10. feb. 2026 Almennar fréttir Efnahagsmál Fréttatilkynning

Fitch hækkar lánshæfiseinkunn Íslands – vöxtur iðnaðar styrkir stöðu ríkissjóðs

Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur hækkað lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins í A+ og eru horfur stöðugar. Í rökstuðningi Fitch kemur meðal annars fram að styrkur atvinnulífsins og vöxtur í verðmætaskapandi greinum, þar á meðal iðnaði, hafi jákvæð áhrif á efnahagslega stöðu landsins og getu ríkissjóðs til að standa við skuldbindingar sínar.

Samkvæmt Fitch endurspeglar hækkunin bættan hag ríkissjóðs, lækkandi skuldahlutfall og sterkan ramma í opinberum fjármálum. Jafnframt er bent á að fjölbreyttara atvinnulíf og aukin verðmætasköpun í útflutningsgreinum styðji við langtímavaxtargetu hagkerfisins og efnahagslegt þol Íslands.

Iðnaður lykilþáttur í verðmætasköpun

Í umfjöllun Fitch er sérstaklega vísað til þróunar í hátæknigreinum og hugverkaiðnaði, auk annarra greina sem skapa mikin virðisauka. Slík þróun dregur úr sveiflum í hagkerfinu og styrkir öflun útflutningstekna, sem er mikilvæg forsenda fyrir traustri lánshæfiseinkunn.

Samtök iðnaðarins hafa ítrekað bent á að vöxtur iðnaðar og aukin fjölbreytni í útflutningi skipti sköpum fyrir efnahagslegan styrk Íslands og betri aðgang að alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Í fyrri greiningum Fitch, sem SI hafa fjallað um, hefur verið lögð áhersla á að hugverkaiðnaður og annar iðnaður styrki samkeppnishæfni landsins og bæti lánskjör til lengri tíma litið.

Traust rekstrarumhverfi skilar árangri

Hækkun lánshæfiseinkunnarinnar er skýr vísbending um að stöðugt og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi geti skilað raunverulegum árangri. Fyrirtæki í iðnaði hafa á undanförnum árum fjárfest í nýsköpun, tækni og mannauði, sem hefur aukið framleiðni og útflutningsgetu hagkerfisins í heild.

Samtök iðnaðarins telja mikilvægt að halda áfram að skapa skilyrði fyrir vöxt iðnaðar, meðal annars með samkeppnishæfu skattaumhverfi, aðgengi að orku og öflugri nýsköpunarstefnu. Slík stefna styrkir ekki aðeins fyrirtæki í iðnaði heldur efnahagslega stöðu Íslands til lengri tíma, eins og nýjustu niðurstöður Fitch undirstrika.