Fréttasafn



4. maí 2020 Almennar fréttir Mannvirki

Fjarfundur norrænna ráðgjafarverkfræðinga

Félag ráðgjafarverkfræðinga, FRV, í samvinnu við systursamtök á Norðurlöndum standa fyrir fjarfundar um áhrif COVID-19 faraldursins á stöðu ráðgjafarverkfræðinga á morgun þriðjudaginn 5. maí kl. 10-11. Fulltrúar allra Norðurlandanna munu á fundinum fara yfir stöðuna í hverju landi fyrir sig, framtíðarsýn og þær aðgerðir sem hefur og verður að grípa til. Fundarstjóri er Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI.

Dagskrá

· Ari Soilammi, RIF, Norway

· Henrik Garver, FRI, Denmark

· Ingólfur Bender, FRV, Iceland

· Magnus Höij, Innovationsföretagen, Sweden

· Helena Soimakallio, SKOL, Finland