Fjögur verkefni verðlaunuð í Menntaþoni 2025
Verðlaunaafhending Menntaþons 2025 fór fram í Húsi atvinnulífsins síðastliðinn föstudag þar sem fjögur verkefni hlutu viðurkenningar. Að Menntaþoninu stóðu Samtök menntatæknifyrirtækja (IEI), Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS), Þróunarsjóður námsgagna, NýMennt Háskóla Íslands og IÐNÚ. Markmið Menntaþonsins er að hvetja til nýsköpunar í íslensku menntakerfi og styðja þróun nýrra lausna sem nýtast nemendum, kennurum og skólum um land allt.
Veitt voru verðlaun í tveimur flokkum: námsgögn og nýsköpun í menntun. Alls bárust 12 hugmyndir í hvorn flokk og hlutu tvær hugmyndir verðlaun; 100.000 krónur voru veittar í fyrstu verðlaun og 50.000 krónur í önnur verðlaun.
Í flokknum námsgögn hlutu þessi tvö verkefni viðurkenningu:
- Undralingur – ný nálgun á stafrænt læsi www.undralingur.is
- Nýsköpun og miðlun í grunnskóla – skapandi verkefni fyrir nám og miðlun.
Í flokknum nýsköpun í menntun hlutu þessi tvö verkefni viðurkenningu:
- Reiknisnilld – gervigreindarnálgun í stærðfræðinámi
- Kennarakvikan – lausn sem styður við faglega þróun kennara
Í dómnefnd sátu Íris E. Gísladóttir, formaður Samtaka menntatæknifyrirtækja, Andri Már Sigurðsson, teymisstjóri á Námsgagnasviði hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Ásta Olga Magnúsdóttir, verkefnastjóri hjá NýMennt Háskóla Íslands, og Ragnar Þór Pétursson, kennari á unglingastigi í Norðlingaskóla og fyrrverandi formaður Kennarasambands Íslands. Umsjón með Menntaþoni 2025 hafði viðskiptastjóri IEI hjá SI, Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir.
Lestrarappið Undralingur – ný nálgun á stafrænt læsi. Gunnar Bjarki Björnsson og Helena Sveinsdóttir tóku við viðurkenningunni frá Írisi E. Gísladóttur, formanni IEI.
Kennarakvikan – lausn sem styður við faglega þróun kennara. Martin Swift tók við viðurkenningunni frá Írisi E. Gísladóttur, formanni IEI.
Reiknisnilld – gervigreindarnálgun í stærðfræðinámi. Sveinn Gauti Einarsson tók við viðurkenningunni frá Írisi E. Gísladóttur, formanni IEI.