Fréttasafn



9. mar. 2018 Almennar fréttir

Forsetahjónin hvetja fólk til að ganga til liðs við Team Iceland

Þegar 100 dagar eru í fyrsta leik Íslands á HM í Rússlandi bjóða forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og forsetafrúin Eliza Reid heiminum að taka þátt í HM-ævintýri Íslendinga undir yfirskriftinni „Team Iceland“. Forsetahjónin hvetja fólk til að ganga til liðs við „Team Iceland“ og upplifa gleðina frá fyrstu hendi og kynnast Íslandi betur.

„Taktu þátt í gleðinni, allir eru velkomnir. Sama hvaða lið þú styður og hvaðan þú ert, þá er pláss fyrir þig í okkar liði,“ segir Eliza í myndbandinu. „Hvort sem við vinnum eða töpum, þá er alltaf spennandi að vera hluti af einhverju stóru, jafnvel þegar þú ert smár,“ segir Guðni í myndbandinu.

Hægt er að ganga til liðs við „Team Iceland“ á síðunni www.teamiceland.com. Við skráningu fær hver stuðningsmaður til dæmis rafræna leikmannatreyju með einstöku númeri og íslenskri útgáfu af eftirnafni viðkomandi þar sem hann er kenndur við eiginnafn föður eða móður með viðskeytinu -son eða -dóttir til að deila á samfélagsmiðlum. Einnig verður hægt að vinna ferð til Íslands. Öllum gefst kostur á að vera með í „Team Iceland“ og taka virkan þátt í eftirvæntingunni og gleðinni með þjóðinni og jafnframt kynna sér það sem landið hefur fram að færa. Fólk er hvatt til að nota #TeamIceland myllumerkið og deila myndbandinu með vinum og vandamönnum, bæði heima og erlendis.

Árangur íslenska landsliðsins á EM í Frakklandi 2016 vakti heimsathygli og jókst áhuginn á landinu mikið. Það er viðbúið að áhuginn á Íslandi vegna HM verði jafnvel enn meiri en fyrir tveimur árum. Því var ákveðið að ráðast í markaðsverkefni fyrir íslenskt atvinnulíf með það markmið að auka vitund um Ísland sem góðan stað til að heimsækja, sem upprunaland gæða í matvælum, vörum og framleiðslu og tilvalinn stað fyrir fjárfestingar og viðskipti. Þetta er samstarfsverkefni fyrirtækja og stjórnvalda og er unnið í góðri samvinnu við KSÍ.

Íslandsstofa sér um framkvæmd verkefnisins sem er unnið undir merkjum Inspired by Iceland og er Team Iceland og boð forsetahjóna fyrsti áfangi í markaðsherferðinni á árinu.

Tengill á myndbandið þar sem forsetahjónin bjóða heiminum að ganga í „Team Iceland.“ https://www.youtube.com/watch?v=88qNMYsE0LE&feature=youtu.be

TeamIceland_Logo_blue_preview_jpeg