Fréttasafn



20. mar. 2018 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Fræðsluerindi um lífsferil raftækja

Verkís og Samtök iðnaðarins bjóða upp á fræðsluerindi um lífsferil raftækja á morgun miðvikudaginn 21. mars kl. 9.00-9.45 í höfuðstöðvum Verkís að Ofanleiti 2 í Reykjavík. 

Keshav Parajuly, nýdoktor í umhverfisverkfræði við háskólann í Suður Jótlandi, heldur erindi um rannsókn sína um visthagkerfi (e. circular economy), einkum lífsferil raftækja. Fyrirlesturinn fjallar um þróun, virði og afleiðingar úrgangs frá raftækjum, sér í lagi verðmætra málma. Parajuly er staddur hér á landi til að halda tvo fyrirlestra í Háskóla Íslands á námskeiði í Lífsferilsgreiningu (LCA).

Fyrirlesturinn er þátttakendum að kostnaðarlausu og ekki þarf að skrá sig. 

Nánar á vef Verkís.