Fréttasafn



11. okt. 2021 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Mannvirki

Framfarasjóður SI auglýsir eftir umsóknum

Framfarasjóður SI auglýsir eftir umsóknum og er umsóknarfrestur til og með 15. október. Umsóknir og fyrirspurnir sendist á netfangið mottaka@si.is

Með umsókn þarf að fylgja greinargóð lýsing á verkefninu, markmiðum þess og með hvaða hætti verkefnið samræmist markmiðum og leiðarljósum sjóðsins. Þá þarf að fylgja verkáætlun, fjárhagsáætlun og staðfesting á annarri fjármögnun ef það á við. Með umsókn þarf að fylgja staðfesting á því að umsækjendur hafi kynnt sér úthlutunarreglur sjóðsins og þá fyrirvara sem þar koma fram.

Markmið Framfarasjóðs SI er að styðja við og þróa framfaramál tengd iðnaði með áherslu á verkefni sem lúta að:

  • Eflingu menntunar fyrir atvinnulífið með áherslu á iðn-, verk- og tækninám
  • Nýsköpun sem styrkir framþróun í iðnaði
  • Framleiðniaukningu með áherslu á skilvirkt rekstrarumhverfi

Styrkir á síðasta ári

Á síðasta ári voru veittir fjórir styrkir að upphæð 26 milljónir króna úr Framfarasjóði SI til eftirtalinna aðila:

Málmur – samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði og Iðnú fékk 14 milljóna króna styrk til þess að gefa út námsefni í málmtengdum iðngreinum í framhaldsskólum. Verkefnið eflir menntun í málmtengdum iðngreinum.

Mannvirki – félag verktaka, Félag ráðgjafarverkfræðinga og Samtök arkitektastofa fékk 5 milljóna króna styrk til að þróa samræmda aðferðafræði vegna kostnaðaráætlana í mannvirkjagerð. Verkefnið stuðlar að aukinni framleiðni og hefur breiða skírskotun.

Ásgarður ráðgjöf fékk 6,5 milljóna króna styrk til að þróa leiðbeiningar og viðmið vegna nýsköpunarkennslu grunnskólanemenda með áherslu á að tengja list- og verkgreinar markmiðum grunnskóla undir yfirskriftinni Nýsköpunarskólinn. Verkefnið snýr að menntun og nýsköpun og hefur breiða skírskotun.

Félag íslenskra gullsmiða fékk 800 þúsund króna styrk til að skrásetja verkferla á gullsmíðaverkstæði. Verkefnið varðar heila grein og stuðlar að aukinni framleiðni.

Auglysing-2021