Framkvæmdum við verknámsskóla verði flýtt eins og kostur er
Meistaradeild Samtaka iðnaðarins, MSI, sem samanstendur af 18 félögum iðnmeistara í byggingariðnaði hafa sent ályktun til mennta- og barnamálaráðherra Guðmundar Inga Kristinssonar með hvatningu um að framkvæmdum við verknámsskóla verði flýtt eins og kostur er. Í niðurlagi ályktunarinnar kemur fram að til að iðn- og tækninám geti mætt vaxandi þörfum atvinnulífsins þurfi tafarlaust að hraða uppbyggingu aðstöðu, nýta tímabundnar lausnir þar sem það eigi við og fjölga nemendaígildum, meðal annars fyrir eldri nemendur. Ríkisstjórnin verði að tryggja málinu forgang þannig að nauðsynleg skref verði tekin án tafar. Um sé að ræða brýnt viðfangsefni sem hafi áhrif á framtíð menntunar, atvinnulífs og samkeppnishæfni þjóðarinnar.
Ályktunin frá Meistaradeild Samtaka iðnaðarins er hér í heild sinni:
Framkvæmdum við verknámsskóla verði flýtt eins og kostur er
Meistaradeild Samtaka iðnaðarins, MSI, fagnar áherslu ríkisstjórnar Íslands á eflingu iðn- og verknáms um land allt og á uppbyggingu aðstöðu fyrir verknám í framhaldsskólum. Nýlegar fregnir um að fjárveitingar til stækkunar verk- og starfsnámsaðstöðu á landsbyggðinni hafi ekki gengið að fullu út á yfirstandandi ári og að fjárheimildir verði fluttar milli ára vöktu upp áhyggjur meðal félagsmanna um mögulegar tafir á framkvæmdum. Þótt mennta- og barnamálaráðherra hafi í fjölmiðlum fullyrt að slíkum töfum verði ekki til að dreifa, telur MSI mikilvægt að árétta brýna nauðsyn þess að umrædd uppbygging haldi fullum dampi og að framkvæmdir dragist ekki. Seinkun uppbyggingar hefur neikvæð áhrif á aðgengi nemenda að fjölbreyttu og metnaðarfullu iðn- og starfsnámi, sem er lykilforsenda fyrir þróun atvinnulífsins um land allt.
MSI hvetur því ríkisstjórn Íslands og mennta- og barnamálaráðherra eindregið til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að hraða uppbyggingu við verknámsskóla. Nauðsynlegt er að þessi uppbygging verði sett í forgang og hrint í framkvæmd án tafar, enda er skortur á iðn- og tæknimenntuðum þegar farinn að hafa neikvæð áhrif á atvinnulífið:
- Alvarlegur skortur á iðnmenntuðu starfsfólki: Samkvæmt könnun meðal stjórnenda aðildarfyrirtækja SI í mars 2024 skortir starfsfólk í 48% iðnfyrirtækja, en 56% stjórnenda nefna sérstaklega skort á iðnmenntuðu starfsfólki.
- Skortur á aðgengi: Á hverju ári er 600–1.000 nemendum synjað um skólavist í iðn- og tækninámi vegna skorts á fjármagni og húsnæði. Nauðsynleg fjölgun nemendaígilda kallar á aukið fjármagn og uppbyggingu aðstöðu.
- Úrelt aðstaða og búnaður: Húsnæði iðnskóla landsins er fyrir löngu orðið of lítið og fullnýtt. Endurnýjun tæknibúnaðar er brýn nauðsyn til að tryggja að námið haldist í takt við þarfir atvinnulífsins.
- Takmarkaðir námsmöguleikar fyrir eldri nemendur: Skortur er á námsleiðum fyrir einstaklinga 18 ára og eldri sem vilja ljúka iðn- og tækninámi.
- Dæmi úr rafiðnaði: Fyrirtæki í rafiðnaði telja að ráða þurfi um 800 rafvirkja á næstu fimm árum. Jafnframt segja 67% stjórnenda fyrirtækja í rafiðnaði að erfiðleikar við að manna stöður hafi dregið úr vexti fyrirtækjanna á undanförnum árum.
- Frammistöðuvandi á alþjóðavísu: Hlutfall ungmenna á Íslandi sem velja iðnnám er lægra en hjá öðrum OECD-ríkjum og færri ljúka náminu á tilsettum tíma. Þetta er þróun sem þarf að snúa við með markvissum aðgerðum.
Til að iðn- og tækninám geti mætt vaxandi þörfum atvinnulífsins þarf tafarlaust að hraða uppbyggingu aðstöðu, nýta tímabundnar lausnir þar sem það á við og fjölga nemendaígildum, meðal annars fyrir eldri nemendur. Ríkisstjórnin verður að tryggja málinu forgang þannig að nauðsynleg skref verði tekin án tafar. Um er að ræða brýnt viðfangsefni sem hefur áhrif á framtíð menntunar, atvinnulífs og samkeppnishæfni þjóðarinnar.
Mánudagurinn 16. júní 2025
F.h. Meistaradeildar SI
Jón Sigurðsson, formaður MSI
Meistaradeild SI samanstendur af eftirfarandi félögum iðnmeistara í byggingariðnaði:
Félag blikksmiðjueigenda, Félag dúklagninga- og veggfóðrarameistara, Meistarafélag byggingariðnaðarmanna í Vestmannaeyjum, Félag skrúðgarðyrkjumeistara, Málarameistarafélagið, Meistarafélag byggingamanna á Norðurlandi, Starfsgreinahóp pípulagningameistara, Meistarafélag húsasmiða, Meistarafélag iðnaðarmanna í Hafnarfirði, Meistarafélag Suðurlands, Meistarafélag byggingamanna Suðurnesjum, Múrarameistarafélag Reykjavíkur, Samtök rafverktaka, Samtök mannvirkjafyrirtækja-Vestfirðir, Samtök mannvirkjafyrirtækja-Austurland, Félag skrúðgarðyrkjumeistara, Félag blikksmiðjueigenda og Meistarafélag byggingariðnaðarmanna í Vestmannaeyjum.
mbl.is, 18. júní 2025.