Fréttasafn



23. mar. 2026 Almennar fréttir Efnahagsmál Fréttatilkynning

Freyr frá KLAK til Samtaka iðnaðarins

Freyr Friðfinnsson hefur verið ráðinn til Samtaka iðnaðarins sem viðskiptastjóri fyrir tækni- og hugverkaiðnað og hefur þegar hafið störf.

Freyr starfaði áður hjá KLAK - Icelandic Startups frá 2019 þar sem hann hafði umsjón með alþjóðlegum verkefnum og leiddi uppbyggingu og framkvæmd verkefnisins DAFNA fyrir Tækniþróunarsjóð. Þar stýrði hann einnig hröðlum og hugmyndasamkeppnum og tók þátt í að byggja upp stærsta mentorsamfélag landsins, KLAK VMS. Hann hefur víðtæka reynslu af nýsköpun, tengslamyndun og stuðningi við fyrirtæki í tækni- og hugverkaiðnaði.

Freyr er með meistaragráðu í frumkvöðlafræði og stjórnun nýsköpunar frá KTH í Stokkhólmi og BS-gráðu í hugbúnaðarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík.  


Vísir, 23. mars 2026.

Viðskiptablaðið, 23. mars 2026.

mbl.is, 23. mars 2026.