Fréttasafn



27. ágú. 2026 Almennar fréttir Efnahagsmál Fréttatilkynning

Fullyrðing Viðskiptaráðs Íslands er röng - Tækni- og hugverkaiðnaður er skilgreining Hagstofu Íslands

Samtök iðnaðarins hafna þeirri fullyrðingu Viðskiptaráðs Íslands að tækni- og hugverkaiðnaður sé eigin skilgreining samtakanna og að samtökin hafi valið að taka fjölda atvinnugreina undir það heiti. Þetta er rangt hjá Viðskiptaráði Íslands. Hið rétta er að Hagstofa Íslands skilgreinir greinina sem sjálfstæðan flokk og birtir tölur um veltu, útflutning og fjölda starfandi fyrir tækni- og hugverkaiðnað. Hagstofan hefur um nokkurra ára skeið birt þessar tölur og eru þær öllum aðgengilegar á vef Hagstofunnar.

Undir greinina falla fyrirtæki sem verja stórum hluta veltu sinnar í rannsóknir og þróun og eiga afraksturinn sem hugverk. Þar er að finna upplýsingatækni og fjarskipti, lyfja-, líf- og heilbrigðistækni, tölvuleikjagerð og annan hátækniiðnað. Þessi fyrirtæki eiga þannig sameiginlegt viðskiptalíkan og mótast rekstur þeirra af sömu starfsskilyrðum, skattahvötum vegna rannsókna og þróunar, hugverkavernd og framboði af STEM-menntuðu fólki. Umbætur stjórnvalda í þessum málaflokkum virka þvert á greinarnar og þess vegna er rétt að ræða um þær sem eina stoð.

Það eru sameiginlegir hagsmunir allra, líka Viðskiptaráðs Íslands og félagsmanna þess, að verðmætasköpun aukist, samkeppnishæfni styrkist og lífskjör batni. Tækni- og hugverkaiðnaður getur orðið verðmætasta útflutningsstoðin við lok áratugarins ef rétt er á málum haldið. Verkefnið fram undan er að skapa skilyrðin til þess að greinin vaxi.