Fréttasafn



13. feb. 2018 Almennar fréttir Mannvirki

Fundur um íslenskan byggingariðnað

Íbúðalánasjóður og Íslenski byggingavettvangurinn standa fyrir opnum fundi um afkastagetu og framleiðni í íslenskum byggingariðnaði undir yfirskriftinni Hvernig byggjum við meira?. Fundurinn verður fimmtudaginn 15. febrúar næstkomandi kl. 12-13 í höfuðstöðvum Íbúðalánasjóðs í Borgartúni 21. 

Dagskrá

  • Of mikið af hinu góða? Staða í byggingariðnaði. Ólafur Heiðar Helgason, hagfræðingur í hagdeild Íbúðalánasjóðs, fjallar um stöðu byggingariðnaðar með hliðsjón af þeim hraða vexti sem nú á sér stað í greininni.
  • Hvernig bætum við framleiðni í íslenskum bygginga- og mannvirkjageira? Hannes Frímann Sigurðsson, verkefnastjóri Íslenska byggingavettvangsins, fjallar um rannsókn á möguleikum til aukinnar framleiðni í greininni.


ILS_e-mail_Isl_Byggingaridn_0218_A