Fundur um rafræna fræðslu
Annar fundur í fundaröðinni Menntamorgnar atvinnulífsins um rafræna fræðslu verður haldinn miðvikudaginn 20. nóvember kl. 8.15-9.00 í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35. Að Menntamorgnum atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök verslunar og þjónustu, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök ferðaþjónustunnar og Samorka.
DAGSKRÁ
- Elomi rafrænt námsumhverfi í Landsbankanum - Auður Hrefna Guðmundsdóttir, sérfræðingur í fræðsludeild Landsbankans
- VIGGA – fræðsluvefur framtíðar - Steinunn Ketilsdóttir, ráðgjafi í stafrænni fræðslu Intellecta
- Lærum af reynslunni – rafræn fræðsla í BYKO - Auðunn Gunnar Eiríksson, mannauðsstjóri BYKO
Fundarstjóri er Jóhanna Vigdís Arnardóttir, verkefnastjóri í menntamálum hjá SI.
Hér er hægt að skrá sig á fundinn.