Fréttasafn



  • Borgartún 35

2. feb. 2015 Starfsumhverfi

Grafalvarlegt að fyrirtæki flytji höfuðstöðvar úr landi vegna hafta

Eigendur plastframleiðslufyrirtækisins Promens hafa ákveðið að flytja höfuðstöðvar þess úr landi eftir að Seðlabankinn hafnaði beiðni um undanþágu frá gjaldeyrishöftum. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir þetta dæmi um skaðsemi haftanna í viðtali við Fréttastofu Stöðvar 2 sl. laugardag. Hann segir ástandið grafalvarlegt og ætlar að óska eftir fundi með forystumönnum ríkisstjórnarinnar vegna stöðunnar.

Formaður SI og framkvæmdastjóri SA hafa einnig lýst yfir áhyggjum af málinu.

Promens óskaði eftir undanþágu frá gjaldeyrishöftum til að flytja allt að 50 milljónir evra úr landi. Fjármunina ætlaði Promens að notað til frekari fjárfestinga en eftir að Seðlabankinn hafnaði beiðninni var ákveðið að selja fyrirtækið og flytja höfuðstöðvar þess úr landi. Fyrirtækið sérhæfir sig í plastframleiðslu en kaupandinn er breska fyrirtækið RPC group.

Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir þetta enn eitt dæmið um alvarlegar afleiðingar hafta. „Við höfum dálítið verið að tala á ef og hefði nótum en nú eru margar staðreyndir sem blasa við um það að samkeppnisstaða Íslands varðandi uppbyggingu alþjóðlegra fyrirtækja í landinu sé í hættu. Auðvitað er það grafalvarlegt,“ segir Almar.

Að óbreyttu sé viðbúið að fleiri fyrirtæki þurfi að flýja land.

„Þetta snýr að því að búa hér umhverfi vel menntaðs fólks sem að sér tækifæri í því að taka þátt í uppbyggingu vaxandi alþjóðlegra fyrirtækja á Íslandi. Þeim tækifærum getur fækkað ef að höftin verða hér viðvarandi ástand.“

Hann ætlar að óska eftir fundi með forystumönnum ríkisstjórnarinnar vegna málsins.

„Að okkar mati snýr þetta að forgangsröðun. Við viljum brýna stjórnvöld til dáða í því að hafa alþjóðlega starfsemi í forgrunni þegar unnið er að afnámi hafta. Við höfum dæmi um skaða af þessu nú þegar og önnur dæmi kunna að vera í uppsiglingu,“ segir Almar.

Í kvöldfréttum Rúv í gærkvöldi var rætt við Þorstein Víglundsson, framkvæmdastjóri SA.

„Þetta veldur okkur mjög miklum áhyggjum. Þetta er stórt og mikilvægt fyrirtæki og mikil synd að sjá á eftir því úr landi verði það niðurstaðan,“ segir Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.“

Fleiri fyrirtæki hafa skoðað þann möguleika að flytja höfuðstöðvar sínar úr landi vegna þeirra takmarkana sem höftin setja þeim í fjárfestingum. Samkvæmt Fréttastofu Rúv hafa fyrirtækin CCP, Creditinfo og Marel einnig skoðað flutning úr landi.

„Það eru grafalvarleg tíðindi að plastframleiðslufyrirtækið Promens ætli að flytja höfuðstöðvar sínar af landi brott eftir að félagið fékk ekki undanþágu frá gjaldeyrishöftum segir Guðrún Hafsteinsdóttir formaður SI í Morgunútgáfunni á Rúv í morgun. Nú sé það að gerast sem Samtök iðnaðarins og fleiri samtök hafi varað við í nokkurn tíma.

„Þótt höfuðstöðvar Promens séu að fara úr landi þá er mjög öflug og blómleg starfsemi fyrirtækisins á Dalvík og verður þar áfram, en hættan er samt sem áður sú að þegar höfuðstöðvar fara þá sér fyrirtækið kannski ekki tækifæri til frekari vaxtar hér á landi eða frekari uppbyggingar. Það á auðvitað við síðan flest fyrirtæki sem eru að starfa á alþjóðlegum markaði að vaxtarskilyrðin eru ekki á Íslandi,“ segir Guðrún.