Fréttasafn



14. maí 2018 Almennar fréttir Menntun

Grunnskólinn ætti að ýta undir hæfni og getu hvers og eins

Það virðist sem tíu ára grunnskólanám geri lítið annað en að búa nemendur undir áframhaldandi bóknám þegar grunnskólinn ætti að horfa til fjölbreytileika og ýta undir hæfni og getu hvers og eins. Það er skoðun mín að mikið brottfall nemenda í framhaldsskólum megi að einhverju leyti rekja til þess að börn séu í röngu námi og hafi ekki fengið viðeigandi ráðgjöf um námsval sitt í grunnskóla. Þetta segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, meðal annars í grein sinni í Morgunblaðinu í dag sem ber yfirskriftina Er verkleg kennsla svæfð í grunnskólanum?

Atvinnulífið hrópar eftir iðnmenntuðum starfskröftum

Í greininni kemur fram að tölfræðin segi okkur að á undanförnum árum hafi ásókn í hefðbundnar iðngreinar farið minnkandi og það sé gríðarlegt áhyggjuefni á sama tíma og atvinnulífið hér á landi hrópi eftir iðnmenntuðum starfskröftum. Guðrún segir að svo virðist sem gríðarlegur munur sé á leikskólastiginu og grunnskólastiginu þar sem í leikskólunum er ýtt undir sköpun og verklega kennslu en svo virðist sem þessir þættir séu svæfðir í grunnskólanum. „Námsáherslur á grunnskólastiginu þarf að endurskoða ef við viljum ná árangri í því að fleiri sæki sér iðnnám að grunnskóla loknum. Kennsla í verklegum greinum allt frá 1. bekk grunnskóla ætti að vera aðgengileg fyrir alla. Við getum þá hvatt unga fólkið okkar til að efla með sér verklega færni sem getur skilað sér í iðnmenntuðu fagfólki sem atvinnulífið tekur fagnandi.“

Hér er hægt að lesa í heild sinni grein Guðrúnar sem birtist í Morgunblaðinu.