Guðrún Hafsteinsdóttir endurkjörin formaður SI
Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í morgun var Guðrún Hafsteinsdóttir, Kjörís, endurkjörin formaður með 91% greiddra atkvæða. Guðrún verður formaður Samtaka iðnaðarins fram til Iðnþings 2018.
Alls gáfu átta kost á sér til almennrar stjórnarsetur og var kosið um fjögur sæti. Þeir sem setjast í stjórn Samtaka iðnaðarins til næstu tveggja ára:
- Katrín Pétursdóttir – Lýsi
- Lárus Andri Jónsson – Rafþjónustan
- Ragnar Guðmundsson – Norðurál
- Sigurður R. Ragnarsson – ÍAV
Fyrir í stjórn Samtaka iðnaðarins eru:
- Agnes Ósk Guðjónsdóttir – GK snyrtistofa
- Árni Sigurjónsson – Marel
- Guðrún Jónsdóttir – Héðinn
- Egill Jónsson – Össur
- Eyjólfur Árni Rafnsson – Eignarhaldsfélagið Birta