Fréttasafn



18. jún. 2025 Almennar fréttir Mannvirki Starfsumhverfi

Hækkun eiginfjárkröfu íþyngjandi fyrir húsnæðisuppbyggingu

Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, segir í frétt Viðskiptablaðsins um hækkun eiginfjárkröfu með innleiðingu nýrra útlánaskilyrða CRR III að samtökin hafi viðrað áhyggjur sínar í umsögn um frumvarp um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki en þær leggist ofan á áhyggjurnar af stöðunni á húsnæðismarkaði en um þessar mundir sé ekki margt sem vinni með nauðsynlegri uppbyggingu á íbúðarhúsnæði. „Háir vextir, lengri sölutími og sífellt hærri kostnaður vegna skorts á lóðum og hækkun opinberra gjalda hafa nú þegar dregið úr uppbyggingu íbúða og þar með veltu í greinni. Á þessum tímapunkti er því afar óheppilegt að bæta ofan á þá þróun frekari íþyngjandi kröfum sérstaklega ef tekið verður mið af tillögum Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar um 35% eiginfjárkröfur á lán til fasteignaverkefna. Slíkt væri enn einn steinninn í götu húsnæðisuppbyggingar.“

Nauðsynlegt að bregðast við ef ekki á illa að fara

Jóhanna Klara segir í Viðskiptablaðinu að SI hafi lagt ríka áherslu á að stjórnvöld fylgist náið með þróun mála í kjölfar þessarar innleiðingar og áhrifum af frumvarpinu. „Við tökum einnig undir þær áhyggjur sem komu fram hjá seðlabankastjóra í kjölfar yfirlýsingar fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans í síðustu viku, þar sem vikið var að byggingariðnaðinum og þeim áhættuþáttum sem felast í því ef hægist á sölu á fasteignamarkaði og verktakar sitji eftir með ósesldar íbúðir á háum vöxtum. Þetta eru raunveruleg og viðkvæm viðfangsefni sem nauðsynlegt er að bregðast við ef ekki á illa að fara.“

Viðskiptablaðið, 18. júní 2025.