Hagsmunir íslensks iðnaðar ræddir í Brussel
Evrópumál og hagsmunir íslensks iðnaðar voru til umræðu á fundi fulltrúa Samtaka iðnaðarins og norsks atvinnulífs í Brussel nýverið. Sérstaklega var rætt um stöðu Evrópumála á Íslandi, fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið og hagsmuni fyrirtækja í samhengi við EES samninginn.
Fundurinn var haldinn á skrifstofu NHO, norskra systursamtaka SI, í Brussel. Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Brussel, fór yfir stöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar og sérstöðu Íslands. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, kynnti stöðu íslensks iðnaðar og niðurstöður greiningar samtakanna frá því í mars á afstöðu fyrirtækja til aðildar að Evrópusambandinu. Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, sótti fundinn einnig fyrir hönd samtakanna.
Auk þeirra tóku þátt fulltrúar NHO, fulltrúar aðildarfyrirtækja samtakanna með starfsstöðvar í Brussel, fulltrúi Norsk Industri og fulltrúi norska sendiráðsins í Brussel.
Góðar umræður sköpuðust á fundinum og sýndu fundargestir íslenskum málefnum mikinn áhuga, ekki síst því hvernig íslensk fyrirtæki meta stöðu sína í ört breytilegu evrópsku umhverfi.

