Fréttasafn



17. ágú. 2026 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Háir vextir til langs tíma eru sannarlega farnir að bíta

„Háir vextir til langs tíma eru sannarlega farnir að bíta og ég held að öll heimili landsins og fyrirtæki finni fyrir þessu,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, meðal annars í Bítinu á Bylgjunni þar sem rætt er um vaxtaákvörðun Seðlabankans á miðvikudaginn en samtökin telja sterk rök vera fyrir því að halda stýrivöxtum óbreyttum nú þegar áhrif hárra vaxta eru farin að koma skýrt fram í auknu atvinnuleysi, auknum vanskilum og versnandi væntingum. 

Sigurður bendir á að atvinnuleysi sé að aukast og að búast megi við frekari fjölgun atvinnulausra á næstu vikum í kjölfar hópuppsagna sem tilkynntar voru fyrr á árinu. Jafnframt hafi vanskil fyrirtækja aukist verulega, sérstaklega í byggingariðnaði þar sem þau hafi þrefaldast á fyrstu sex mánuðum ársins. Þá séu væntingar bæði almennings og stjórnenda fyrirtækja í sögulegu lágmarki og hafi ekki verið lægri frá tímum heimsfaraldursins.

Sigurður segir að samtökin bendi á að of harkalegt aðhald geti unnið gegn markmiðum peningastefnunnar og því séu sterk rök fyrir því að halda vöxtum óbreyttum. Þegar hann er spurður hvort þetta sé of harkalegt aðhald segir Sigurður: „Aðhaldið er allavega mjög harkalegt. Ég held að það sé alveg ljóst þegar við sjáum aukið atvinnuleysi og aukin vanskil. Ég held að það leiki sér enginn að því að segja upp fólki til að mynda. Það er gert af ýtrustu nauðsyn.“

Jafnframt minnir Sigurður á að áhrif vaxtabreytinga komi fram með töluverðri töf, oft á bilinu sex til átján mánuðir, og því þurfi Seðlabankinn að vera framsýnn í sínum ákvörðunum.

Hér er hægt að hlusta á viðtalið við Sigurð í heild sinni.

Bítið á Bylgjunni, 17. ágúst 2026.