Fréttasafn



2. apr. 2019 Almennar fréttir

Heilbrigt og gott atvinnulíf er sameiginlegt verkefni

Það er sameiginlegt verkefni okkar, launþega og atvinnurekenda, að sjá til þess að hér sé heilbrigt og gott atvinnulíf með tilheyrandi störfum og verðmætasköpun. Fyrir því eigum við að tala en því miður gleymist þetta oft. Þetta skiptir máli því nóg er af úrtöluröddum þeirra sem vilja ala á sundurlyndi. Þetta er meðal þess sem Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, segir í grein sinni sem birt er í Fréttablaðinu í dag undir yfirskriftinni Iðnaður er undirstaða. 

Þá segir Guðrún að á þeim tíma sem Samtök iðnaðarins voru stofnuð fyrir 25 árum hafi verið takmarkaður skilningur á mikilvægi iðnaðarins en nú séu samtökin stærstu og öflugustu hagsmunasamtök atvinnurekenda á Íslandi. „Rödd iðnaðar er skýr og innan samtakanna er unnið mikið og gott starf. Á síðasta starfsári samtakanna hafa sigrar unnist á sviði menntunar, nýsköpunar, innviða og starfsumhverfis sem vert er að fagna og hafa samtökin lagt sín lóð á vogarskálarnar til að efla samkeppnishæfni landsins. Samstöðumátturinn skilar sér. Skýr sýn, fumlaus framkvæmd og markviss eftirfylgni leiðir til raunverulegra umbóta og leggur grunn að auknum lífsgæðum.“

Í niðurlagi greinar sinnar segir Guðrún að með því að halda áfram á þeirri braut aukist verðmætasköpun og meira verði þar af leiðandi til skiptanna og þannig verði Ísland eftirsótt til búsetu og atvinnurekstrar.

Hér er hægt að lesa grein Guðrúnar í heild sinni.