Heimsókn frá Finnlandi
Starfsmenn finnsku samtakanna The Confederation of Finnish Construction Industries (RT), ásamt fulltrúum aðildarfyrirtækja samtakanna, heimsóttu Samtök iðnaðarins síðastliðinn föstudag. Það voru starfsmenn mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins sem tóku á móti gestunum og kynntu meðal annars fyrir þeim starfsemi samtakanna. Þá fór hópurinn í heimsókn til BYGG sem er eitt af aðildarfyrirtækjum SI.
Hópurinn á skrifstofu Samtaka iðnaðarins í Húsi atvinnulífsins.
Hópurinn í skoðunarferð á byggingarsvæði BYGG.