Fréttasafn



7. maí 2019 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Horft verður til framtíðar á ársfundi Samáls

Skráning stendur yfir á ársfund Samáls sem haldinn verður næstkomandi fimmtudag 9. maí kl. 8.30-10.00 í Kaldalóni í Hörpu. Yfirskrift fundarins er Álið er hluti af lausninni. Á fundinum verður horft til framtíðar og umhverfis- og öryggismál verða í brennidepli. Um leið verður þess minnst að hálf öld er liðin frá því álframleiðsla hófst á Íslandi. Fundarstjóri er Sólveig Bergmann.

Dagskrá

8:00 - Morgunverður.
8:30 - Ársfundur.

  • · Staða og horfur í áliðnaði - Magnús Þór Ásmundsson stjórnarformaður Samáls og forstjóri Alcoa Fjarðaáls.
  • · Ávarp - Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
  • · Verðmætasköpun í hálfa öld - Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins.
  • · Nýsköpun í öryggismálum - Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri AMS.
  • · Fókusinn er á umhverfið - Steinunn Dögg Steinsen framkvæmdastjóri öryggis- og umhverfismála Norðuráli.
  • · Stefnumótun út frá heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna - Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Festu.
  • · Endurvinnsla áls og hringrásarhagkerfið - Pétur Blöndal framkvæmdastjóri Samáls.

10:00 - Kaffispjall að loknum fundi.

Fundargestum gefst kostur á að skoða nýjan rafbíl úr frumframleiddu og endurunnu áli, Jaguar I-Pace. Þá gefst kostur á að spreyta sig á öryggisþjálfun í sýndarveruleika í boði Statnett.

Boðið verður upp á morgunverð og að fundi loknum verður kaffispall og veitingar.

Aðgangur er öllum opinn. Á vef Samáls er hægt að skrá sig.