Fréttasafn



6. maí 2019 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Hvatningardagur fyrir konur í upplýsingatækni

Vertonet stendur fyrir hvatningardegi fyrir allar konur í upplýsingatækni fimmtudaginn 9. maí kl. 12.30-19.00 í Iðnó. Yfirskrift dagsins er Fjölbreyttari framtíð. Fundarstjóri er Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins. Vertonet eru hagsmunasamtök kvenna í upplýsingatækni á Íslandi, 

Dagskrá

  • 12:30 - Húsið opnar
  • 13:00 - Ávarp ráðherra - Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, dómsmála-, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • 13:10 - Hlutverk stjórnandans í tækniumhverfinu - Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Marel á Íslandi Er mikilvægt að fá fleiri konur í stjórnendastöður í tæknigeiranum? Hvað er spennandi við að vera stjórnandi í tækniumhverfinu? Lærdómur minn sem stjórnandi og hvernig starfsferillinn þróaðist þangað. 
  • 13:40 - Valkyrja í eigin lífi - Ragnhildur Ágústsdóttir, sölustjóri samstarfsaðila hjá Microsoft á Íslandi Hvatningaóður til kvenna í tæknigeiranum sem byggir á persónulegri reynslu Ragnhildar af mótlæti í starfi og hvernig snúa megi vörn í sókn. Hagnýtt og persónulegt erindi sem er til þess fallið að fylla okkur innblæstri og orku til frekari afreka.
  • 14:10 – Stafrænar konur! - Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi Kara Connect Tækifærin eru kvenna í tækni. Á sama tíma og tækni breytir öllum störfum eru allt of fáar konur að grípa tækifærin. Hvað getum við gert?
  • 14:40 - Kaffihlé
  • 15:00 – Elín Gränz, ein af stofnendum VERTOnet og kyndilberi könnunar um stöðu kvenna í upplýsingatækni mun fara yfir fæðingu hennar.
  • 15:10 - Hver er staða kvenna í upplýsingatækni á Íslandi? - Lydía Ósk Ómarsdóttir, ráðgjafi hjá Intellecta ehf. Farið verður yfir niðurstöður könnunar sem Intellecta gerði í samstarfi við Vertonet um stöðu kvenna í upplýsingatækni á Íslandi. Hvert er hlutfall kvenna í upplýsingatæknistörfum á Íslandi? Hver er upplifun kvenna af störfum í upplýsingatækni og hvernig getum við hvatt fleiri konur til þess að starfa í geiranum?
  • 15:40 - Pallborðsumræður um könnun Intellecta. Í pallborði sitja: Dr. Ari Kristinn Jónsson rektor HR, Sesselja Vilhjálmsdóttir framkvæmdastjóri Tagplay og Ragnheiður H. Magnúsdóttir forstöðumaður framkvæmda hjá Veitum sem jafnframt leiðir umræðuna.
  • ​16:00 - Veiting viðurkenninga
  • 16:30 -19:00 - Teygjum á tengslanetinu

Léttar veitingar í lok dags.

Þátttökugjald er 3.900 krónur. Á vef tix.is er hægt að kaupa miða.