Fréttasafn



31. mar. 2022 Almennar fréttir Ár grænnar iðnbyltingar Iðnaður og hugverk Samtök álframleiðenda á Íslandi

Hvatningarviðurkenningar fyrir áltengda nýsköpun

Á Nýsköpunarmóti Álklasans í gær voru veittar hvatningarviðurkenningar og styrkir til nemendaverkefna sem þóttu standa fram úr á sviði áltengdrar nýsköpunar, en það hefur tíðkast frá árinu 2018. Áherslur á snjallvæðingu og grænar lausnir voru áberandi í þeim verkefnum sem tilnefnd voru og kallast það vel á við áherslu iðnaðarins um þessar mundir. Stuðningsaðilar hvatningarviðurkenninganna eru Alcoa Fjarðaál, Efla, Íslandsstofa, Landsbankinn, Mannvit, Norðurál, , Rio Tinto á Íslandi, Samál, Samtök iðnaðarins og Tæknisetur.

Á myndinni eru styrktaraðilar og nemendur við afhendingu hvatningarviðurkenninganna: Brynjar Bragason Eflu, Gunnar Sverrir Gunnarsson Mannviti, Sigrún Helgadóttir Norðuráli, Dagmar Ýr Stefánsdóttir Alcoa Fjarðaáli, Ásmundur Hálfdán, Jóhanna Lóa, Ragnar Loki, Lingxue Guan, Guðrún Sævarsdóttir Háskólanum í Reykjavík sem tók við viðurkenningu fyrir Kamaljeet Singh, Birna Pála Kristinsdóttir Isal og Guðbjörg Óskarsdóttir Álklasanum og Tæknisetri.

Nemendurnir sem fá viðurkenningu í ár:

  • Ásmundur Hálfdán Ásmundsson, Háskólanum í Reykjavík: Hönnun á staðfrænum tvíbura fyrir málmflæði hjá Alcoa Fjarðaáli með áherslu á búnað og gögn.
  • Kamaljeet Singh, Háskólanum í Reykjavík: Grunnrannsóknir á rafgreiningu með eðalskautum.
  • Jóhanna Lóa Ólafsdóttir og Ragnar Loki Ragnarsson, Háskóla Íslands: Nýr umhverfisvænn kragasalli
  • Lingxue Guan, Háskóla Íslands: Að samþætta öfluga osmósu með föngun CO2 fyrir raforkuframleiðslu og kolefnisbindingu.

Fyrri verðlaunahafar:

2021

  • Aðalsteinn Bragason, Ingvar Birgir Jónsson og Sverrir Ólafsson, Stóriðjuskóla Isal: Straummælingar skauta framkvæmdar úr skautskiptitækjum.
  • Áslaug Guðmundsdóttir, Háskóla Íslands: Straummælingar forskauta í kerskálum álvera.
  • Berglind Höskuldsdóttir, Háskólanum í Reykjavík: Innleiðing á rauntímaefnagreiningu í kerskála álvers.
  • Diljá Heba Petersen, KTH og Háskóla Íslands: Í átt að hringrásarhagkerfi: Meðhöndlun úrgangs í íslenskum orkufrekum iðnaði.
  • Sarah Elizabeth Di Bendetto, Háskólanum í Reykjavík: Hermun á loftstreymi og varmaflutningi undir yfirbyggingu rafgreiningarkers fyrir álframleiðslu.

2019

  • Caroline Mary Medion, Háskólanum í Reykjavík: Bætt straumnýtni hjá lághita rafgreiningu á áli með lóðréttum eðalrafskautum.
  • Diljá Heba Petersen, Háskóla Íslands: Endurnýtingarmöguleikar slaggs frá kísiljárnframleiðslu.
  • Eymar Andri Birgisson, Háskólanum í Reykjavík: Sjálfvirknivæðing á kerviðgerðum með tölvusjón.
  • Hinrik Már Rögnvaldsson, Háskóla Íslands: Flokkunarmódel planaðrar áltöku.

2018

  • Kevin Dillman, Háskóla Íslands: LCA greining á íslenskri álframleiðslu.
  • Leó Blær Haraldsson, Háskólanum í Reykjavík: Hitaveita með varmaendurvinnslu frá Fjarðaál, fýsileikagreining.
  • Matthías Hjartarson, Háskólanum í Reykjavík: Uppbygging á tauganeti fyrir greiningu á raflausnarleifum á dökku yfirborði í raunumhverfi.
  • Regína Þórðardóttir, Háskóla Íslands: Kortlagning á framleiðsluúrgangi sem fellur til innan áliðnaðar.