Fréttasafn



4. mar. 2026 Almennar fréttir Efnahagsmál Fréttatilkynning

Iðnaður er undirstaða hagsældar

Í nýrri greiningu SI kemur fram að íslenskur iðnaður sé öflug og fjölbreytt atvinnugrein sem sé undirstaða hagsældar landsmanna. Verðmætasköpun iðnaðar nam 1.100 milljörðum króna á síðasta ári. Það jafngildir um fjórðungi af heildarverðmætasköpun íslensks hagkerfis. Útflutningstekjur greinarinnar námu 791 milljarði króna á því ári eða um 40% af heildar útflutningstekjum hagkerfisins. Í greininni störfuðu í fyrra 52 þúsund manns sem er nær eitt af hverjum fjórum störfum í hagkerfinu. Velta greinarinnar nam nær 2.300 milljörðum króna í fyrra sem er um þriðjungur af veltu viðskiptahagkerfisins. Skattspor iðnaðar var 564 milljarðar króna árið 2024, stærst útflutningsgreina.

Þessar tölur endurspegla þó ekki heildaráhrif iðnaðarins. Virðiskeðja greinarinnar er fjölþætt og teygir sig langt út fyrir beinan rekstur iðnfyrirtækja. Fyrirtækin kaupa vörur og þjónustu af fjölda aðila í öðrum greinum og afrakstur verðmætasköpunarinnar dreifist vítt og breitt um samfélagið. Þessi óbeinu áhrif (margföldunaráhrif) fela í sér að raunverulegt vægi iðnaðar í verðmætasköpun er meira en beinar mælingar gefa til kynna. Öflugur iðnaður er því mikilvæg forsenda fyrir vexti efnahagslífsins, þvert á greinar.

Verðmætasköpun í iðnaði byggir á samspili mannauðs og fjármagns. Greinin er tæknivædd og krefst verulegra fjárfestinga í sérþekkingu, tækjabúnaði, nýsköpun og rannsókna- og þróunarstarfi. Slíkar fjárfestingar styðja við framleiðnivöxt og gera fyrirtækjum í greininni kleift að greiða laun sem eru að jafnaði hærri en í mörgum öðrum greinum hagkerfisins.

 

Idnadur_tolur-fyrir-A5-flyer


Hér er hægt að nálgast greininguna í heild sinni.