Fréttasafn



8. mar. 2018 Almennar fréttir

Iðnþing í dag og útgáfa nýrrar skýrslu

Iðnþing Samtaka iðnaðarins fer fram í Silfurbergi í Hörpu í dag 8. mars kl. 13.30 - 17.00. „Ísland í fremstu röð – eflum samkeppnishæfnina“ er yfirskrift Iðnþings 2018. Samhliða Iðnþingi gefa Samtök iðnaðarins út ítarlega skýrslu með sama heiti sem fjallar um samkeppnishæfni Íslands og helstu áskoranir. Skýrslan er unnin af starfsmönnum Samtaka iðnaðarins og er í skýrslunni horft til samkeppnishæfni Íslands út frá menntun, nýsköpun, innviðum og starfsumhverfi. Í skýrslunni eru einnig samantektir um stöðu hagkerfisins, umhverfismál og þær tæknibreytingar sem eru framundan.

Meðal þess sem kemur fram í skýrslunni, sem er hátt í 100 síður, eru helstu áskoranir sem þarf að mæta til að efla samkeppnishæfni landsins að mati Samtaka iðnaðarins. 

Hér er hægt að nálgast skýrsluna.

Forsida-skyrslu-med-ramma

Fjórir ráðherrar taka þátt í umræðum

Á Iðnþingi koma saman ráðherrar og leiðtogar aðildarfyrirtækja samtakanna til að ræða um samkeppnishæfni Íslands en samkeppnishæfni ríkja breytist stöðugt og því er stefnumótun mikilvægasta verkefni stjórnvalda hverju sinni. Með skýrri sýn og eftirfylgni má vinna að raunverulegum umbótum í samfélaginu og efla samkeppnishæfni Íslands. Þannig er lagður grunnur að auknum lífsgæðum landsmanna. Í umræðunum á þinginu á meðal annars að leita svara við því hver eru mikilvægustu verkefnin til að ná árangri og hvernig bregðast þarf við helstu áskorunum.

Í upphafi þingsins flytja ávörp Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Þá eru umræður í fjórum pallborðum sem verður stjórnað af þeim Ingólfi Bender, aðalhagfræðingi SI, og Sigríði Mogensen, sviðsstjóra hugverkasviðs SI. Í lok þingsins flytur Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, erindi. Sjá dagskrá hér fyrir neðan.

Dagskrá Iðnþings 2018

Kl. 13.30 ÁVARP

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI

Kl. 13.45 ÁVARP

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

Kl. 14.00 VIRKJUM TÆKIFÆRIN

Gestur Pétursson, forstjóri Elkem á Íslandi

Sesselja Vilhjálmsdóttir, stofnandi og forstjóri Tagplay

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

Kl. 14.15 FJÁRFESTING Í DAG ER HAGVÖXTUR Á MORGUN

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra

Ólöf Helgadóttir, rafmagnsverkfræðingur hjá Lotu

Sigurður R. Ragnarsson, forstjóri ÍAV

Kl. 14.30 MENNTAKERFIÐ ER EKKI EYLAND

Finnur Oddsson, forstjóri Origo

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra

Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi

Kl. 14.45 LEITIN AÐ STÖÐUGLEIKA

Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra

Eva Hlín Dereksdóttir, framkvæmdastjóri Raftákns

Kl. 15.00 Áræðni, ný hugsun og djörf framtíðarsýn

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI

Að þingi loknu verður boðið upp á léttar veitingar.

Auglysing-med-myndum