Fréttasafn



15. mar. 2018 Almennar fréttir

Internet hlutanna - bein útsending

Morgunverðarfundur IÐUNNAR og SI í fundarröðinni um fjórðu iðnbyltinguna fjallar um Internet hlutanna (Internet of things, IoT). Fundurinn er í húsnæði IÐUNNAR að Vatnagörðum 20.

Hér er hægt að horfa á beina útsendingu frá fundinum:

https://www.youtube.com/watch?v=sZ5OdxqVKAo

Á fundinum svarar Þór Jes Þórisson, forstöðumaður tæknimála hjá Símanum,  spurningunni: Hvað er Internet of Things, IoT? Fjallað verður um skilgreininguna á IoT, sögu IoT, stærð markaðar fyrir IoT, fjarskiptamöguleika IoT og loks tekin nokkur almenn dæmi um IoT á einstaklings og fyrirtækjamarkaði. Snæbjörn Ingi Ingólfsson viðskiptastjóri hjá Origo mun svo fjalla um þær breytingar sem IoT boðar á næstunni, hvað er að mögulega að fara að breytast, hvaða tækni erum við farin að sjá í dag. Eru þetta ógnir eða tækifæri?