Ísland í kjörstöðu til að nýta eingöngu græna orku
Hér á Íslandi erum við í kjörstöðu til að vera í forystu á heimsvísu með því að nýta eingöngu græna orku í framtíðinni. Það kallar á fleiri virkjanir, í sátt við umhverfi og náttúru, en á móti kemur að Ísland verður enn sjálfstæðara í orkumálum og með því að draga úr og hætta að lokum að flytja inn olíu sparast háar fjárhæðir árlega. Þetta segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, meðal annars í grein í Viðskiptablaðinu sem ber yfirskriftina Atvinnulífið tekur ábyrgð.
Ísland áfram í forystu í heiminum ef rétt er á málum haldið
Í greininni segir Sigurður að ríki heims stefni að kolefnishlutleysi og séu íslensk stjórnvöld þar engin undantekning. „Græn iðnbylting hófst seint á síðustu öld og mun standa yfir næstu áratugi. Árangur í loftslagsmálum grundvallast á nýsköpun, innleiðingu grænna lausna og aukinni nýtingu grænnar orku í stað olíu og annars jarðefnaeldsneytis. Þar höfum við Íslendingar góða sögu að segja og getum við áfram verið í forystu í heiminum ef rétt er á málum haldið. Á Íslandi urðu framfarir þegar hugmyndir leiddu til ákvarðana og uppbyggingar, meðal annars á sviði innviða, grænnar orku og iðnaðar. Þetta er hugmyndalandið, þar sem hugmyndir verða að veruleika og framfarir sem auka velsæld landsmanna.“
Fyrirtæki landsins láta sig loftslagsmál varða
Þá segir Sigurður að Samtök iðnaðarins og félagsmenn samtakanna hafi ekki látið sitt eftir liggja. Samtökin tileinkuðu árið 2022 grænni iðnbyltingu til þess að vekja máls á loftslagsmálum og hvetja til aðgerða. Hann segir að fyrirtæki landsins hafi sannarlega látið sig loftslagsmál varða, sýnt vilja í verki og hafi metnað til þess að gera enn betur. Sum fyrirtæki hafi þegar náð kolefnishlutleysi í sinni starfsemi og mörg fyrirtæki hafi gert metnaðarfullar áætlanir til að draga úr losun. Enn önnur fyrirtæki þrói grænar lausnir sem nýtist öðrum – hérlendis og erlendis – við að ná sínum markmiðum.
Stjórnvöld setji hvata og atvinnulíf þrói og innleiði lausnir
Jafnframt kemur fram í greininni að loftslagsvegvísar atvinnulífsins hafi verið gefnir út á síðasta ári og lýsi þeim fjölmörgu þáttum sem þurfa að koma saman svo árangur náist. Byggingariðnaður hafi verið fyrsta atvinnugreinin til að gera vegvísi í átt að kolefnishlutleysi og komi það til í góðri samvinnu stjórnvalda og atvinnulífs. Þó stjórnvöld setji markmið þá þurfi að þróa útfærslur í virku samtali stjórnvalda og atvinnulífs, þar sem lausnirnar verði til. Sigurður segir að þetta hafi gefist vel erlendis og megi þar nefna Svíþjóð, Danmörku og Bandaríkin. Á sama hátt þurfi stjórnvöld og atvinnulíf að koma saman hér á landi til að þróa útfærslur og aðgerðir. Stjórnvöld setji upp hvata og atvinnulíf þrói og innleiði bestu lausnirnar.
Aukinni eftirspurn mætt með aukinni olíunotkun
Í niðurlagi greinarinnar segir Sigurður að framboð á raforku hafi ekki haldið í við vöxt og viðgang samfélagsins. Aukinni eftirspurn hafi verið mætt með aukinni olíunotkun með tilheyrandi losun gróðurhúsalofttegunda þvert á sett markmið. Þessu þurfi að breyta. „Þó framtíðin virðist fjarlæg þá verður að hefja undirbúning nú þegar svo græn orka verði tiltæk þegar tæknin verður innleidd en margar lausnir eru nú þegar tilbúnar til notkunar. Minnumst þess að Hvammsvirkjun, sem verður senn reist, hefur verið í undirbúningi í aldarfjórðung og framkvæmdir hafa enn ekki hafist. Framtíðin kemur hvort sem við erum undir hana búin eður ei.“
Hér er hægt að lesa grein Sigurðar í heild sinni.
Viðskiptablaðið / vb.is, 2. október 2024.