Íslenskar menntatæknilausnir kynntar í nýsköpunarvikunni
Íslandsstofa og Samtök iðnaðarins standa fyrir kynningu á íslenskum menntatæknilausnum í nýsköpunarvikunni. Viðburðurinn sem ber yfirskriftina Future of Learning – EdTech Showcase fer fram á skrifstofu Íslandsstofu á 4. hæð í Grósku mánudaginn 27. apríl kl. 15.30-17.00.
Meðal þeirra sem kynna eru frumkvöðlar fjölmargra menntatæknifyrirtækja þar sem þau fara yfir lausnir og hugmyndir að því hvernig hægt er að breyta því hvernig kennt er og hvernig hægt er að læra.
Að kynningum loknum verður boðið upp á veitingar, spjall og tengslamyndun með frumkvöðlum, kennurum, fjárfestum og leiðtogum í nýsköpun. Hvort sem þú starfar við menntun, tækni eða hefur einfaldlega áhuga á framtíð náms þá er þetta einstakt tækifæri til að hitta fólkið sem er að þróa næstu kynslóð lausna í menntamálum á Íslandi.
Hér er hægt að skrá sig á viðburðinn.
Dagskrá | Future of Learning – EdTech Showcase
15:30 – Opnunarávarp Sigríður Mogensen – sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins
15:35-16:00
HRTech lausnir
- Hinnrik Josafat Atlason – Atlas Primer: The Missing Layer in EdTech: Training Human Performance
- Helga Jóhanna Oddsdóttir, Founder – Opus Futura: Your fully automated and professional recruiter
- Sigyn Jónsdóttir, CTO & Co-founder – Alda: How micro-learning is transforming workplace culture
- Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir – Kara Connect: Another pandemic?
- Elsa Thorsteinsson, Sölu- og markað – Alfreð: Hæfnileit – góð báðu megin!
HRTech + EdTech lausnir
- Anna Greta Ólafsdóttir – Geta – gæðastarf í skólum: Meta til að Geta
- Jón Gunnar Thordarson, CEO & Founder – Bara tala: Language: The Key to the Workplace and Society
EdTech lausnir
- Sigurður Gunnar Magnússon – Evolytes: Making math fun!
- Helgi S. Karlsson – Beanfee ehf.: Beanfee vistkerfið
- Ingvar Ágúst Ingvarsson, Education – Beedle: The Classroom and Parent-Engagement Layer on Microsoft Teams
16:25 – 17:00 Drykkir & networking


