Fréttasafn



23. maí 2019 Almennar fréttir Orka og umhverfi

Kallað eftir tilnefningum fyrir Umhverfisverðlaun atvinnulífsins

Kallað hefur verið eftir tilnefningum fyrir Umhverfisverðlaun atvinnulífsins sem afhent verða 9. október næstkomandi í Hörpu. Veitt eru tvenn verðlaun, umhverfisfyrirtæki ársins og framtak ársins. Hægt er að senda tilnefningar á netfangið sa@sa.is fyrir 7. september merkt „Tilnefning til umhverfisverðlauna atvinnulífsins“. 

Dómnefnd velur úr tilnefningum og mun meðal annars skoða eftirfarandi þætti:

Umhverfisfyrirtæki ársins

  • Hefur innleitt umhverfisstjórnunarkerfi
  • Hefur aflað viðurkenninga fyrir starfsemina/afurðirnar
  • Hefur sjálfbæra nýtingu í stefnu sinni
  • Hefur dregið úr úrgangi og nýtir aðföng vel
  • Innra umhverfi er öruggt
  • Áhættumat hefur verið gert fyrir starfsemina
  • Gengur lengra en lög og reglur segja til um til að draga úr áhrifum starfseminnar á umhverfið

Framtak ársins

  • Hefur efnt til athyglisverðs átaks til að draga úr umhverfisáhrifum af starfsemi sinni
  • Hefur komið fram með nýjung – vöru, þjónustu eða aðferð – sem hefur jákvæð umhverfisáhrif

Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.

NM94150-SA-umhverfisverdlaun-netpostur